Beint frá Harlem í New York á skemmtistaðinn Harlem Sara McMahon skrifar 17. júlí 2013 08:00 „
Það er gaman að fljúga burt frá Harlem til þess eins að lenda aftur á Harlem,“ segir bandaríski tónlistarmaðurinn Alap Momin um tónleika hljómsveitarinnar Mrc Riddims á skemmtistaðnum Harlem í kvöld. Alap skipar hljómsveitina ásamt Merc Yes, en tvíeykið er ættað frá New York, nánar tiltekið frá Harlem-hverfinu, og leikur taktþunga partýtónlist. Alap hefur heimsótt Ísland í fjórgang, þá með hávaðarappsveitinni Dälek. „Ísland er á topp fimm listanum mínum yfir uppáhaldsstaðina mína. Hér er mikið af hæfileikafólki og það sem meira er, þá hef ég aldrei hitt leiðinlegan Íslending, þótt ég sé viss um að þeir leynist hér einhvers staðar,“ segir Alep og Merc tekur undir. „Ég hef aðeins verið hér í tæpan sólarhring og hef ekki hitt neinn sem kalla mætti leiðinlegan.“ Þeir félagar eru góðir vinir og samstarfsmenn tónlistarmannsins Curver og eru hér á landi fyrir hans tilstuðlan. „Við erum á leið á G! Festival í Færeyjum og ákváðum að heimsækja Curver í leiðinni, úr varð þetta litla tónleikaferðalag,“ segir Alap, en tvíeykið kemur einnig fram á LungA á Seyðisfirði. Tónlistarmennirnir voru á leið í ferðalag um Gullfoss og Geysi þegar Fréttablaðið náði af þeim tali í gær og hlökkuðu þeir mikið til ferðalagsins.Tónleikar Mrc Riddims fara fram á Harlem í kvöld og hefjast klukkan 22.
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Fleiri fréttir Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Sjá meira