Nigella Lawson farin frá eiginmanninum 18. júní 2013 20:00 Nigella Lawson og eiginmaður hennar, Charles Saatchi, deila ekki heimili lengur. Saatchi sást grípa ítrekað um háls eiginkonu sinnar er þau rifust á veitingastað í London í síðustu viku. Nordicphotos/getty
Charles Saatchi, listaverkasafnari og eiginmaður sjónvarpskokksins Nigellu Lawson, neitar að hafa beitt eiginkonu sína ofbeldi á veitingastað í London í síðustu viku. Myndir af atvikinu birtust á forsíðu breska blaðsins Sunday People, en þar sést Saatchi taka Lawson hálstaki. Hinn sjötugi listaverkasafnari sagði í viðtali við BBC að málið væri á misskilningi byggt og segist aðeins hafa gripið um háls eiginkonu sinnar til að leggja áherslu á mál sitt. Saatchi heldur því fram að hann og Lawson hafi rifist um börn sín og að hún hafi grátið vegna þess að henni þyki leiðinlegt þegar þau hjón rífist. „Það var ekkert grip, þetta var smárifrildi. Myndirnar eru skelfilegar og draga upp ofbeldisfulla mynd af atburðinum. Nigella grét ekki af sársauka heldur af því að okkur er báðum illa við rifrildi,“ sagði Saatchi. „Við höfðum náð sáttum áður en heim kom. Ljósmyndarar söfnuðust svo saman fyrir utan heimili okkar eftir að fréttin birtist [á sunnudag]. Ég sagði Nigellu að fara burt með börnin þar til storminn hafi lægt.“ Talsmaður Lawson hefur staðfest við breska fjölmiðla að sjónvarpskokkurinn og börn hennar hafi yfirgefið heimili þeirra hjóna. Hann vildi þó ekkert láta uppi um hvort það væri tímabundið eða til frambúðar.
Mest lesið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Stjörnurnar syngja inn haustið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Dorrit missti aðgang á forrit Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát Sjá meira