Íslandsvinur forðast hina ferðamennina Birgir H skrifar 30. maí 2013 07:00 Fred segist ekki hafa verið kalt á ferðum sínum um landið núna í maí. "Það er samt búið að vera hvasst og það hefur verið pirrandi.“ fréttablaðið/vilhelm
Fred van Pie, verkfræðingur frá Hollandi, segist forðast fjölsóttustu ferðamannastaði landsins á mörgum ferðum sínum um landið. Hann hefur komið hingað árlega síðan 1991, búið í tjaldi og gengið á fjöll. „Ég sæki í kyrrðina og get verið einsamall dögum saman á fjöllum,“ segir Fred, sem var að borða morgunmat á tjaldstæðinu í Laugardal þegar blaðamaður hafði upp á honum. Hann gisti þar í fyrrinótt eftir að hafa gengið á fjöll frá Borgarfirði eystra. „Ég kem einu sinni á ári, tvisvar ef yfirmaður minn leyfir.“ Fred segist vera fyrr á ferðinni í ár en vanalega vegna þess að hann langaði að ganga Laugaveginn inn í Landmannalaugar áður en vegir þangað opna. Á þann vinsæla stað er hann hættur að fara á háannatíma. „Það er of mikið af fólki. Ég kem hingað til að njóta kyrrðarinnar.“ Á ferðum sínum hefur Fred lent í ýmsu. Í fyrra tók hann sér þrjá mánuði í að ganga frá Hornbjargi að Gerpi, þvert yfir Ísland, í júlí og fram í september. „Það er hægt að gera þetta á mun skemmri tíma en ég vil geta stoppað nokkrar nætur á fallegum stöðum og notið.“ Skemmst er að minnast þess óveðurs sem gekk yfir norðausturhluta landsins í september í fyrra. Fred fór ekki varhluta af veðrinu enda staddur norðan Vatnajökuls þegar það gekk yfir. „Ég vaknaði í skálanum og sá að það snjóaði en lagði af stað þó að ég hefði verið varaður við. Það var skemmtileg upplifun,“ segir hann og glottir. Spurður hvort það sé betra að vera ferðamaður núna eða fyrir tuttugu árum segir hann afdráttarlaust þá. „Það er bara of mikið af fólki.“
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól Sjá meira