Hljómsveitin Valdimar hlaut menningarverðlaun Reykjanesbæjar Jón Júlíus Karlsson skrifar 13. nóvember 2013 09:54 Þrír meðlima hljómsveitarinnar Valdimar tók menningarverðlaunum Reykjanesbæjar í gær. Mynd/Reykjanesbær
Hljómsveitin Valdimar hlaut í gær Súluna, menningarverðlaun Reykjanesbæjar. Verðlaunin voru veitt í gær við hátíðlega athöfn í Listasal Duushúsa. Hljómsveitin Valdimar hlaut Súluna fyrir framlag sitt til eflingar tónlistar. Þetta er í 17. sinn sem verðlaunin eru afhent. Verðlaunagripurinn er hannaður og smíðaður af keflvísku listakonunni Elísabetu Ásberg. Handhafa fyrri ára má sjá á vef Reykjanesbæjar. Formaður menningarráðs Björk Þorsteinsdóttir afhenti verðlaunin fyrir hönd bæjarstjórnar. Við sama tækifæri var styrktar- og stuðningsaðilum Ljósanætur, menningar og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar, þakkaður stuðningurinn og greint frá þeirri ánægjulegu staðreynd að fjöldi þessara aðila eykst með hverju árinu, nú voru þeir 85 en 66 í fyrra.Um hljómsveitina Valdimar: Hljómsveitin Valdimar úr Reykjanesbæ var stofnuð árið 2009 og er skipuð 4 Keflvíkingum, Garðbúa og einum höfuðborgarbúa. Strákarnir eiga það flestir sameiginlegt að hafa hlotið tónlistaruppeldi í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, mismikið þó, og þar hófust kynni sumra þeirra. Sumir létu staðar numið í formlegu tónlistarnámi á unglingsárum en aðrir héldu áfram og hafa lokið framhaldsnámi í tónlist. Til að mynda krækti Valdimar í höfuðborgarbúann í Listaháskólanum þar sem Kristinn lagði stund á tónsmíðar. Valdimar og Þorvaldur trommuleikari ólust saman upp í tónlistarskólanum. Sveitin tók strax við að semja sína eigin tónlist og fyrstu tónleikar þeirra fóru fram á skemmtistaðnum Paddy‘s í Keflavík. Þar var staddur Björgvin Ívar Baldursson, barnabarn Rúnars Júlíussonar heitins, sem heyrði í strákunum og bauð þeim að kíkja í Geimstein. Í framhaldinu bauð Geimsteinn þeim plötusamning og boltinn fór að rúlla. Segja má að hljómsveitin hafi nánast slegið í gegn á einni nóttu. Sjálfir reiknuðu strákarnir ekki með þessum ótrúlegu móttökum. Þeir voru ofsa kátir þegar lag frá þeim fór að hljóma á öldum ljósvakans og sáu fyrir sér að í framhaldinu fengju þeir kannski að spila svolítið í Keflavík. Það má með sanni segja að þeir hafi hitt naglann á höfuðið þegar þeir gáfu fyrstu plötu sinni nafnið Undraland en það má auðveldlega færa fyrir því rök en þangað hafi þeir rambað þegar platan þeirra kom út árið 2010. Platan fékk afar góðar viðtökur og nutu lögin Yfirgefinn, Brotlentur og Undraland mikilla vinsælda í útvarpi og var Yfirgefinn eitt mest spilaða lag ársins 2011. Fyrir plötuna hlaut sveitin tilnefningu sem Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum það ár auk þess sem hún var valin á úrvalslista Kraums. Næsta plata hljómsveitarinnar, Um stund kom út árið 2012 og naut líka mikillar hylli og má þar sértaklega nefna lögin Sýn, Beðið eftir skömminni og Yfir borgina. Platan var valin önnur besta plata ársins af hlustendum og starfsfólki Rásar 2 og á íslensku tónlistarverðlaununum var platan tilnefnd sem besta platan, fyrir lagahöfund ársins og Valdimar Guðmundsson hlaut verðlaun sem besti söngvari ársins.Meðlimir hljómsveitarinnar eru: Ásgeir Aðalsteinsson, gítarleikari og lagahöfundur Guðlaugur Már Guðmundsson, bassaleikari Högni Þorsteinsson, gítarleikari Kristinn Evertsson, hljómborðsleikari Valdimar Guðmundsson, söngvari, básúnuleikari og lagahöfundur Þorvaldur Halldórsson, trommuleikari
Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira