47 fíkniefnamál í Eyjum Kristján Hjálmarsson skrifar 5. ágúst 2013 09:21 Það var líf og fjör í Vestmannaeyjum um helgina. Þjóðhátíð fór ágætlega fram um helgina þó erill hafi verið hjá lögreglu. Mynd/Óskar P. Friðriksson
Erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt, sérstaklega undir morgun. Fangageymslur voru fullar en aðeins sex klefar eru í Eyjum. Fyrir vikið þurfti að skipta út fólki þegar líða fór á nóttina. Skömmu eftir miðnætti var maður handtekinn í Herjólfsdal eftir að tvítug stúlka kærði hann fyrir að hafa neytt sig til munnmaka. Var maðurinn, sem er fertugur, vistaður í fangageymslu og verður fluttur á Selfoss eftir hádegi í dag til frekari skýrslutöku. Vitni verða og yfirheyrð í málinu í dag. Tólf fíkniefnamál komu til kasta lögreglu í nótt og urðu fíkniefnamálin því alls 47 á Þjóðhátíð í ár. Tvö af þessum málum voru stærri mál, þar sem lagt hald á um 30 grömm af amfetamíni í hvoru þessara mála. Á þessari hátíð var lagt hald flestar algengar tegundir fíkniefna, svo sem amfetamín, kókaín, maríhúana og LSD. Engar alvarlegar líkamsárásir hafa komið upp á hátíðinni, en tvær minniháttar árásir hafa verið kærðar en þar var einungis um pústra að ræða. „Mér sýnist þetta hafa gengið vel að mestu leyti. Það er ekki óeðlilegt að eitthvað komi upp þegar 15 þúsund manns koma saman til að skemmta sér, þó gæslan sé mikil,“ segir Jóhannes varðstjóri í Vestmannaeyjum. „Þetta var hvorki rólegasta né annasamasta hátíðin.“ Veður er með ágætum í Eyjum, sólin skín en norðanátt. Snemma í morgun var komin löng röð á bryggjuna þar sem Þjóðhátíðargestir biðu eftir Herjólfi en hann fer tíu ferðir í dag. Þá hófst flug frá Eyjum snemma í morgun.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira