Enski boltinn

Carrick búinn að framlengja við Man. Utd

Hinn 32 ára gamli miðjumaður Man. Utd, Michael Carrick, er búinn að skrifa undir nýjan samning við ensku meistarana.

Nýi samningurinn gildir til ársins 2015 og því ansi líklegt að hann endi feril sinn á Old Trafford.

„Það er frábært að vera búinn að framlengja við þetta frábæra félag. Það hafa orðið breytingar hjá félaginu og ég er mjög sáttur undir stjórn David Moyes," sagði Carrick við heimasíðu félagsins.

"Ég hef unnið marga titla hérna og ætla mér að vinna enn fleiri."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×