Vítissódi brenndi 50 prósent af líkamanum 22. nóvember 2013 20:00 „
Þegar við vorum að byrja að afla okkur gagna um óupplýst lögreglumál á Íslandi þá fundum við gamalt viðtal í Helgarpóstinum frá 1982 við geðlæknana Gísla H. Guðjónsson og Hannes Pétursson en þeir voru þá að ljúka nýlegri rannsókn um morð á Íslandi. Fjögur morðmál reyndust vera óupplýst og þau verða öll til umfjöllunar í þáttunum,” segir Brynja Dögg Friðriksdóttir, framleiðandi Óupplýstra lögreglumála, nýrrar þáttaraðar í umsjón Helgu Arnardóttur, sem hefst næstkomandi sunnudag. Það voru þó takmarkaðar upplýsingar sem komu fram í viðtalinu. Elsta málið var frá 1945, tvö frá 7. áratug síðustu aldar og það fjórða frá 8. áratugnum. ,,Þar sem málin voru svona gömul þá er afar hæpið að rannsakendur þeirra séu á lífi. Við vorum hvorki með nöfn né upplýsingar um vettvang þessara glæpa. Það var því ekkert annað í stöðunni en að verja einum degi eða svo í að ‘google-a’ sig niður á þessi mál. Og það gerðum við.”Hrottaleg líkamsárás dregur mann til dauðaMorðið á Birni Stefánssyni er eitt þessara mála og fyrsta málið sem tekið er fyrir í Óupplýstum lögreglumálum. Björn Stefánsson fór í kvöldgöngu eitt sumarkvöld í júní 1963 en varð fyrir hrottalegri líkamsárás og lést af sárum sínum nokkrum dögum síðar. Björn var ókvæntur og barnslaus og bjó með systur sinni. Hann var vel liðinn reglumaður og náinn fjölskyldu sinni. „Björn fer út um kvöldið og það er í raun mjög lítið vitað um ferðir hans og hver örlög hans voru nákvæmlega. Það virðist sem það hafi verið ráðist á hann í kjallara Hafnarbúða sem voru þá verbúðir. Árásarmaðurinn gengur í skrokk á honum og hellir yfir hann vítissódalegi sem brennir um 50% af líkama hans. Hann var með meðvitund fyrst um sinn en greindi aldrei frá því sem raunverulega gerðist. Eftir andlát hans hafði maður samband við lögregluna sem greindi frá ákveðnum upplýsingum sem benda til þess að þetta hafi mögulega verið fyrsti hatursglæpur á Íslandi,” segir Brynja. Fyrsti þáttur Óupplýstra lögreglumála verður sýndur næstkomandi sunnudag kl. 20:45 á Stöð 2. Umsjónarmaður þáttanna er Helga Arnardóttir.Hér að ofan má sjá kynningarstiklu þáttarins
Mest lesið Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Erlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Innlent Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Veður Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Innlent D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða Innlent Gæti orðið flughált síðdegis Innlent Kynnir þrettán aðgerðir gegn brotastarfsemi Innlent Fleiri fréttir Kynnir þrettán aðgerðir gegn brotastarfsemi Kæru vegna gistihýsa við þjóðgarðinn í Skaftafelli vísað frá Endurspegli aukna hörku í garð launafólks hjá Hafnarfjarðarbæ Samfylkingin mætt til leiks á Ísafirði Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Gæti orðið flughált síðdegis Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða „Þá er bara búið að skemma MR“ Fyrsti framboðslisti Viðreisnar í Ísafjarðarbæ samþykktur Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Björgunarsveitir ferja heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu Tók rúma þrjá tíma að slökkva eldinn Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Átökin breiðast út: Brá illilega þegar nærliggjandi hótel var sprengt í loft upp Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Hringveginum lokað vegna veðurs Davíðs minnst á Alþingi Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Nýtt framboð í Bolungarvík Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Íslenskir strandaglópar í Dúbaí Sjá meira