Kolgrafafjörður kjaftfullur af síld sem má ekki veiða Heimir Már Pétursson og Kristján Hjálmarsson skrifar 22. nóvember 2013 14:58 Síldin í Kolgrafafirði í fyrra mynd/vilhelm
Kolgrafafjörður er fullur af síld fyrir innan brú þriðja árið í röð en sjómenn á minni bátum hafa ekki heimild til að veiða hana. Pálmi Stefánsson skipstjóri á Kidda RE sem er átta tonna trilla, er þessa stundina fyrir innan brú á bát sínum. „Hér er komin síld innfyrir. Við höfum siglt yfir um það bil 10 faðma þykkar torfur. Við erum á leið út fyrir brúna núna þar sem við erum með netin okkar en skruppum inn fyrir til að tékka á hvort þar væri síld,“ segir Pálmi Stefánsson skipstjóri. Í fyrrahaust drápust um 50 þúsund tonn af síld innan við brúna í Kolgrafafirði og svipað magn árið á undan. Sjávarútvegsráðherra gaf smábátum nýlega 300 tonna viðbótarkvóta á síld, þannig að það hrekkur ekki til ættu smábátar nú að reyna að veiða sem mest af síldinni fyrir innan brú til að koma í veg fyrir umhverfisslys. En þyrfti ekki að veiða hana áður en hún drepst? „Við megum það ekki. Þetta er allt kvótabundið og ráðherrann hleypir okkur ekki í hana. Hann hefur nú þegar um tólfhundruð tonn til að úthluta en hann vill ekki úthluta meiru,“ segir Pálmi. Þannig að þótt menn sjái síldina sprikla innan við brúna mega þeir ekki veiða hana. „Nei, nei. Hún má bara drepast þar,“ segir Pálmi.Bjarni Sigurbjörnsson, bóndimynd/vilhelmEkki góðar fréttir segir bóndi„Ég sé bátinn út um gluggann. Þetta eru ekki góðar fréttir fyrir mig," segir Bjarni Sigurbjörnsson, bóndi á Eiði í Kolgrafarfirði. „Hann spáir líka dauðalogni og blíðu, það er ekki gott.“ En það eru góð skilyrði fyrir súrefnisskorti í sjónum fyrir innan brúna. Að sögn Bjarna tekur nú við viðbragðsáætlun um hreinsun og björgun verðmæta. Ekki sé komin upp áætlun til að koma í veg fyrir sama slys og varð í fyrra þegar nokkur þúsund tonn af síld urðu innlyksa í Kolgrafarfirði. „Það tekur allt svo langan tíma í kerfinu. Það hefði að sjálfsögðu átt að gera þetta í sumar en svo urðu ráðherraskipti og þess háttar. Við sitjum í þessum samráðshópi þar sem er verið að ræða þessi mál. Það væri alveg hægt að ráðast í einhverjar aðgerðir en spurningin er bara hvaða aðgerðir. Nú erum við að falla á tíma - síldin er komin,“ segir Bjarni. „Það eina sem ég get gert er að undirbúa komu síldarinnar - hringja í menn og reyna að bjarga því sem bjargað verður í fyrramálið. Áður en síldin verður að drullu,“ segir Bjarni.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Innlent Fleiri fréttir Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Sjá meira