Innlent

Eftirlitsmyndavél í Vesturbænum

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Auk myndavélarinnar mun lögreglan áfram fylgjast með umferðinni á þessum stað.
Auk myndavélarinnar mun lögreglan áfram fylgjast með umferðinni á þessum stað. mynd/Vilhelm Gunnarsson
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur komið upp eftirlitsmyndavél í Ánanaustum í Vesturbæ Reykjavíkur.  Lögreglan hefur oft verið kölluð þangað vegna ógætilegs aksturs ökumanna og hefur hún haft afskipti af ökumönnum sem eiga erfitt með að virða lög og reglur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Auk myndavélarinnar mun lögreglan áfram fylgjast með umferðinni á þessum stað. Aksturslag sumra bílstjóra sé þannig að hætta og óþægindi skapist fyrir aðra. Lögreglan hvetur þá sem keyra þannig að láta af slíkri hegðun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×