Innlent

Olíuvinnslan ekki eyðilagt ímynd norsks sjávarútvegs

Sigmundur Ernir Rúnarsson. Segir kappsmál að ná þekkingu í olíuleit og vinnslu inn í landið.
Sigmundur Ernir Rúnarsson. Segir kappsmál að ná þekkingu í olíuleit og vinnslu inn í landið. Mynd/Anton Brink.
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, var eini þingmaður stjórnarliðsins sem í umræðum um Drekasvæðið á Alþingi í gær lýsti jákvæðum viðhorfum í garð olíuleitar en hann sagði ánægjulegt ef auðlindum Íslendinga fjölgaði. Sigmundur Ernir sagði að þeir aðilar sem fengið hefðu sérleyfi þyrftu vitaskuld að uppfylla kröfur íslenskra stjórnvalda. Þar þyrfti að fara með gát. "Þarna eru íslensk fiskimið. Þarna er sú ímynd sem við viljum draga af norðurslóðum í húfi," sagði þingmaðurinn. Hann minnti þó á reynslu nágrannaþjóða af því að samþætta olíuvinnslu, ferðaþjónustu og sjávarútveg. "Ekki verður annað séð en Norðmenn hafi komist ágætlega frá þeim þremur samliggjandi þáttum á síðustu áratugum. Noregur er eitthvert vinsælasta ferðamannaland á norðurhveli jarðar, enda er þar margt að skoða, og ekki virðist raunin vera sú að olíuvinnsla hafi eyðilagt þá ímynd eða að sjávarútvegur og olíuvinnsla hafi ekki farið saman í því landi," sagði Sigmundur Ernir. Hann sagði afskaplega mikilvægt að sækjast eftir því að sú þekking sem yrði til vegna rannsókna og eftir atvikum olíuvinnslu sæti eftir í landinu. Samkeppni væri mikil milli landa og allt eins gæti farið svo, ef við berðumst milli héraða hér á landi, að þekkingin yrði eftir úti í löndum. Þess vegna væri það kappsmál fyrir Íslendinga að leggjast á eitt að ná þekkingunni inn í landið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×