Frestun á nauðungarsölum fagnað Stefán Árni Pálsson skrifar 6. desember 2013 18:41 Vilhjálmur Bjarnason formaður Hagsmunasamtaka Heimilanna.
Hagsmunasamtök Heimilanna hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem samtökin fagna því að innanríkisráðherra hafi brugðist við áskorununum um að stöðva nauðungarsölur á heimilum. Samtökin fagna einnig frumvarpi Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðisráðherra, sem gerir ráð fyrir fjárhagsaðstoð, fjármagnaða með gjaldi á fjármálafyrirtækin, vegna tryggingar fyrir skiptakostnaði þeirra sem vilja fara fram á gjaldþrot. Hér að neðan má lesa fréttatilkynninguna í heild sinni: Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna fagnar því að innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir, skuli loks hafa brugðist við ítrekuðum áskorunum samtakanna um að stöðva nauðungarsölur á heimilum neytenda. Fulltrúar samtakanna áttu fund með innanríkisráðherra þann 9. október þar sem þessi krafa var sett fram, annars vegar vegna þess að samtökin telja nauðungaruppboð vera óréttmæt nema að undangengnum dómsúrskurði og hins vegar vegna þess að ótækt væri að bjóða upp húsnæði fólks á meðan beðið væri boðaðra aðgerða ríkisstjórnarinnar. Svör ráðherrans við kröfum samtakanna voru á þá leið að stöðvun nauðungaruppboða gengi gegn stjórnarskárvörum réttindum kröfuhafa. Þegar ráðherrann var spurð nánar út í þetta í fjölmiðlaumræðum um nauðungaruppboð í kjölfar fundarins svaraði ráðherra því til að þetta væri samkvæmt áliti “helstu sérfræðinga á þessu sviði”. Hagsmunasamtök heimilanna voru síður en svo sátt við þessi svör og skoruðu þann 16. október á ráðherra að skýra nánar í hverju þetta “álit helstu sérfræðinga á þessu sviði” um ófrávíkjanlegan rétt kröfuhafa felist. Þegar engin svör bárust frá ráðuneytinu ítrekuðu samtökin áskorun sína þann 18. október. Þeirri ítrekun hefur ekki verið svarað. Nú virðast helstu sérfræðingar Innanríkisráðherra um nauðungaruppboð hafa komist að því að Hagsmunasamtök heimilanna hafi haft rétt fyrir sér, að vel sé hægt að stöðva nauðungaruppboð ef pólitískur vilji standi til þess. Hljóti frumvarpið samþykki þingsins verður því fjölskyldum gert kleift að fresta nauðungarsölum sem krafist er á heimilum þeirra fram yfir 1. júlí 2014, og skapa sér svigrúm til að bjarga heimili sínu frá því að verða tekið af þeim með svo harkalegum aðgerðum. Hugur okkar í Hagsmunasamtökum heimilanna er þó þessa stundina með þeim sem standa frammi fyrir því núna rétt fyrir jólin, þangað til og ef þetta verður samþykkt á Alþingi, að heimili þeirra kunni að verða selt ofan af þeim. Einnig er hugur okkar hjá þeim sem þegar hafa misst heimili sín á nauðungarsölum sem haldnar hafa verið á ólöglegum grundvelli. Athygli er vakin á því að gildandi lög virðast ekki leyfa endurupptökur á nauðungarsölum, jafnvel þegar sýnt hefur verið fram á að þær hafi verið fengnar fram ólöglega í mörgum tilvikum, en úr því þarf jafnframt að bæta. Einnig fagna Hagsmunasamtök heimilanna að á sama tíma hafi Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðisráðherra lagt fram frumvarp sem gerir ráð fyrir fjárhagsaðstoð, fjármagnaða með gjaldi á fjármálafyrirtækin, vegna tryggingar fyrir skiptakostnaði þeirra sem vilja fara fram á gjaldþrot. Því fólki hefur hingað til verið haldið í árangurslausu fjárnámi þar sem fjármálastofnanir hafa ógjarnan viljað fara fram á gjaldþrot skuldara, eftir að fyrningartími krafna við gjaldþrotaskipti var styttur í tvö ár. Með því að auðvelda skuldurum að leita gjaldþrots má segja að loksins hafi fjármálafyrirtæki fengið hvata til að semja frekar við fólk heldur en að geta haft það undir hælnum endalaust. Þess má geta að bæði framangreind atriði eru meðal þeirra sem Hagsmunasamtök heimilanna lögðu hvað mesta áherslu á í umsögn sinni um þingsályktunartillögu forsætisráðherra sem liggur til grundvallar aðgerðum stjórnvalda vegna skuldavanda heimilanna.- f.h. stjórnar Hagsmunasamtaka heimilanna
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira