Viskan í augnaráði Mandela Jakob Bjarnar skrifar 6. desember 2013 12:47 Vigdís segir Mandela fyrirmynd fyrir heiminn.
Nelson Mandela fyrrverandi forseti Suður-Afríku, frelsishetja og helsti leiðtogi þjóðar sinnar, lést á heimili sínu í gærkvöldi eftir að hafa verið undir læknishendi vegna sýkingar í lungum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, hefur fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands og íslensku þjóðarinar sent samúðarkveðjur til suðurafrísku þjóðarinnar vegna fráfalls hans; Mandela hafi verið táknmynd frelsis, vonar, mannúðar og fyrirgefningar og með fráfalli hans sé ekki einungis genginn helsti leiðtogi Suður Afríkur heldur heimsbyggðarinnar allrar. Minningin um baráttu hans í þágu jafnréttis og mannréttinda muni ávallt lifa. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, segir ekki hægt að vera sorgmæddur við fráfall þegar einstaklingur hafi verið veikur lengi og kominn á þennan aldur. En, Mandela er ríkur í huga Vigdísar. „Hann er náttúrlega ekki horfinn úr minningu okkar. Ég hitti hann einu sinni og hitti þar fyrir mikinn mannúðarmann. Ég álít að hann hafi verið fyrirmynd fyrir heiminn.“Hvernig kom hann þér fyrir sjónir? „Hlýr, með viskuna í augnaráðinu og ákaflega áhrifaríkt að spjalla við hann nokkur orð.“Menn hafa haft á orði að hann sé einn merkasti stjórnmálamaður sögunnar, myndir þú taka undir það? „Hann er alla vega einn af allra minnisstæðustu stjórnmálamaður okkar tíma. Tvímælalaust. Ég þori nú ekki að svara fyrir aldirnar fyrir aftan okkur. Mannúðarstefna hans og það afrek að ráða við að koma á réttlætinu í Suður-Afríku – það er náttúrlega einstakt í heimssögunni.“Guðmundur Andri skrifar það sem margur vildi sagt hafa.Með kærleikann að leiðarljósi Fjölmargir Íslendingar hafa tjáð trega sinn vegna andláts Mandela, sem var 95 ára þegar hann lést, á Facebook. Þannig skrifaði til að mynda Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur á sína síðu, og virðist skrifa það sem margur vildi sagt hafa því þessum stutta pistli hefur verið dreift víða um net: „Gandhi – Martin Luther King – Nelson Mandela: allir fundu þeir leið til að bregðast við eilífum ósigrum og daglegri niðurlægingu; að snúa henni upp í mannlega reisn, án þess að upphefja þjáninguna eins og kaþólikkar gera heldur einmitt með því að mæta kúgun og þjáningu með alvöru, horfast í augu við hana, neyða kúgarann til að horfast í augu við sig sem manneskju. Þeir störfuðu allir í anda Fjallræðunnar þar sem er að finna hinn eiginlega grundvöll kristninnar. Gandhi var drepinn á stund sigursins og Martin Luther King á umbrotatímum þegar margt hafði áunnist en Nelson Mandela var einmitt stærstur á sigurstundinni og í kjölfar hennar og veitti okkur mikilvæga kennslu í því hvernig á að takast á við þá sem hafa kúgað og hatað og nært lygina: með kærleikann og sannleikann að leiðarljósi.“Jóhannes kom á fundi við Mandela í gegn um Bridget Mabandla, menningar- og vísindaráðherra Suður Afríku.Fyllti herbergið með ótrúlegri nærveru Jóhannes Kr. Kristjánsson fréttamaður var 28 ára þegar hann hitti Mandela í Jóhannesarborg í júlí árið 2000 ásamt þeim Inga R. Ingasyni og Róberti Marshall. „Ég man þegar ég stóð í garðinum fyrir utan heimili hans í úthverfi Jóhannesarborgar hugsaði ég að hann hefði setið í fangelsi í jafn langan tíma og ég hafði lifað, mínus eitt ár,“ skrifar Jóhannes á bloggsíðu sína í dag. Jóhannes var að vinna fyrir samtökin Path - European Youth Without Drugs og kom á fundi við Mandela í gegn um Bridget Mabandla, menningar- og vísindaráðherra Suður Afríku. „Við færðum Mandela gjafir; ljósmyndabækur um Ísland og lítinn stein frá Þingvöllum,“ skrifar Jóhannes. „Hann tók vel á móti gjöfunum og var sérstaklega ánægður með að hafa „piece of Iceland in my office.“ Ég rétti honum ljósmyndabókina og fletti upp á mynd af Þingvöllum en missti um leið bréf frá mér og Víkingi sem datt á gólfið. Ingi R. stökk til og ætlaði að beygja sig eftir bréfinu en Mandela stoppaði hann. Og þá kom saga úr fangelsinu þar sem hann lýsti því hvernig fangaverðirnir hentu öllum bréfum sem honum bárust í fangelsið á gólfið. Með þessu hafi þeir viljað niðurlægja hann. Mandela beygði sig því sjálfur eftir bréfinu. Þetta var augnablik sem ég mun aldrei gleyma.“ Jóhannes segir Mandela hafa fyllt herbergið með ótrúlegri nærveru og segist hann viss um að hann muni aldrei upplifa slíkt „charisma“ frá manneskju aftur. „Þegar fundinum lauk gekk Mandela að hurðinni og opnaði fyrir okkur og sagði um leið; „Nú getið þið sagt að Mandela hafi opnað fyrir ykkur hurðina,“ og hló innilega og kvaddi okkur með virktum.“
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira