Vilja viðurlög sem bíta á löndunarsvindlara Þorgils Jónsson skrifar 6. desember 2013 00:00 Fiskistofustjóri vill að stofnunin fái heimildir til að leggja stjórnvaldssektir á þá sem staðnir eru að því að landa afla fram hjá vigt. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Viðurlög við löndun fiskafla fram hjá hafnarvog eru of væg til þess að hafa nægan fælingarmátt. Þetta segir fiskistofustjóri í samtali við Fréttablaðið og leggur til að stofnunin fái heimild til að leggja á stjórnvaldssektir. Sem stendur hefur Fiskistofa heimildir til þess að svipta fiskiskip veiðileyfi tímabundið, en auk þess eru mál afgreidd í gegnum dómskerfið. Fjársektir sem þar eru ákvarðaðar miðast hins vegar við markaðsverð fisks eftir löndun, en ekki við afurðaverð, sem er í öllum tilfellum mun hærra. Þannig er möguleiki á því að útgerðarfyrirtæki sem landar afla fram hjá hafnarvog, og ekki kemst upp um brotið fyrr en eftir að aflinn hefur verið unninn og seldur út úr húsi, gæti hagnast meira en sem nemur sektinni. Eyþór Björnsson fiskistofustjóri játar því aðspurður að viðurlög við framhjálöndun séu væg og fælingarmáttur þeirra því takmarkaður. „Það eru dæmi um að útgerð hafi verið staðin að því að landa framhjá vigt og svipt veiðileyfi vegna umfangs brotsins. Útgerðarfyrirtækið leigði sér þá bara nýtt skip og hélt áfram veiðum þannig að viðurlögin bitu ekki neitt.“ Brot eru kærð til lögreglu og fara sem slík hefðbundna leið í gegnum dómskerfið, en Eyþór segir að mál sem þessi mæti oft afgangi og sektir sem fylgja dómum séu oftar en ekki of lágar til þess að þær bíti. Eyþór segir að Fiskistofa hafi lagt til að stofnunin fái heimildir til að leggja á stjórnvaldssektir við brotum. „Þannig væri hægt að beita strax sektum við brotum sem eru upplýst.“ Á síðasta þingi var lagt fram frumvarp sem kvað á um heimildir til Fiskistofu um að leggja allt að 50 milljóna sektir á einstaklinga og 150 milljónir á fyrirtæki. Frumvarpið stoppaði hins vegar í nefnd og komst ekki til annarrar umræðu. Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra segist telja mikilvægt að slíkar heimildir séu til staðar til að taka á brotum. „En ég er efins um að stofnunum, án þess að ég sé að tala um Fiskistofu sérstaklega, sem hafa bæði stjórnsýsluhlutverk og sjá um eftirlit og framkvæmd séu færðar mjög miklar heimildir til stjórnvaldssekta.“ Ráðherra segir málið vera til skoðunar í ráðuneytinu. Stefnt sé að því að það komi sem fyrst til kasta þingsins, en óvíst er hvort það verði fyrr en næsta haust.Tveir sviptir veiðileyfi í fyrra Á árinu 2012 kom upp 61 mál hjá Fiskistofu vegna brota gegn reglum um vigtun sjávarafla og þar af voru tvö tilvik þar sem skip voru svipt veiðileyfi eftir að hafa landað afla fram hjá hafnarvog.(Árétting: Í frétt þessari í Fréttablaðinu í dag var vikið að úrskurði Fiskistofu gegn Saltveri í Reykjanesbæ frá því síðasta vor. Það skal tekið fram að síðan þá hefur þeim úrskurði verið hnekkt og málið fellt niður.)
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira