Björn Bjarnason vill breyta útvarpshúsinu í lögreglustöð Jakob Bjarnar skrifar 29. nóvember 2013 10:34 Björn Bjarnason: Miðað við legu útvarpshússins á höfuðborgarsvæðinu og gerð mundi húsið henta vel sem höfuðstöðvar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
Fyrrum dóms- og menntamálaráðherra setur fram hugmynd á bloggi sínu sem gæti slegið tvær flugur í einu höggi; leyst vanda Ríkisútvarpsins sem og húsnæðisvanda lögreglunnar. Björn Bjarnason segir frá því að þegar hann gegndi embætti menntamálaráherra hafi stjórnendur ríkisútvarpsins talið lífsspursmál að komast í hið mikla útvarpshús við Efstaleiti en Páll Magnússon vilji nú selja það. Og ef það kæmist nú til framkvæmda, hvað skal þá gera við húsið? Björn kann svör við því: „Miðað við legu útvarpshússins á höfuðborgarsvæðinu og gerð hússins með miklum geymslum fyrir tæki og tól auk góðs rýmis umhverfis það mundi húsið til dæmis henta vel sem höfuðstöðvar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og þar færi einnig vel um samhæfingarstjórn almannavarna, fjarskiptadeild lögreglu, neyðarlínuna auk vakstöðvar siglinga.“ Þá bendir Björn á að Reykjavíkurborg vilji breyta Hlemmi í þágu skapandi greina og með því hljóti að vakna áhugi fjárfesta á að nýta lögreglustöðina við Hverfisgötu í þágu þjónustu af einhverju tagi eða reisa nýtt hús á reitnum – „þarna er einnig kjörinn staður fyrir Listaháskóla Íslands sem vill vera í hringiðu miðborgarinnar.“ Ómar Ragnarsson er annar bloggari sem fjallar um útvarpshúsið í fróðlegum pistli. Hann bendir til að mynda á að húsið sé sex hæða. „Sex hæðir, já, 6 hæðir! Sumir skilgreina hæðina sem bílakjallarinn er í sem kjallara, en undir þeim kjallari er annar kjallari, ótrúlegt en satt, sem er nokkurs konar leynihæð.“
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira