Lovestar-hugmynd Andra Snæs verður að veruleika Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 14. ágúst 2013 13:39 Hugmynd Andra Snæs í bókinni Lovestar svipar mjög til geimsendinga fyrirtækisins Elysium Space. mynd/365 „
Þetta er sama hugmynd og í skáldsögu minni Lovestar,“ segir Andri Snær Magnason, rithöfundur, um fréttir af því að nú sé hægt að senda ösku ástvina sinna út í geim þar sem henni er svo dreift um sporbaug jarðar. Sagan hans, Lovestar kom út í Bandaríkjunum í desember á síðasta ári. „Mér finnst eins og það sé verið að hefja aftur vinnu að hugmynd sem byrjað var á fyrir einhverju síðan. Þetta kemur fram í bókinni minni Draumalandinu, en þessi hugmynd að senda ösku manna út í geim var til, undir einhverju öðru nafni.“ „Ég held að þetta sé dæmi um samliggjandi hugmyndir. Hugmyndir sem spretta upp á ólíkum stöðum, eins og þegar fínkur ná að læra að brjóta innsigli á mjólkurflöskum samtímis á 20 stöðum í Bretlandi. Þetta er kallað „meme“, þegar hugmynd liggur einhversstaðar í loftinu og smitar fólk samtímis. Ég sem rithöfundur skrifa bók um hugmyndina, aðrir stofna fyrirtæki.“ „Í þessu tilviki er verið að senda út nokkur grömm af fólki, gallinn er að eldflaugarnar eru einnota og það er helsti kostnaðurinn. Elon Musk stofnandi Tesla Motors er að þróa margnota eldflaugar og þegar þær verða komnar, verður hægt að taka svona geimsendingar upp á það stig sem er í Lovestar, þar sem askan af manneskju í heilu lagi var send út í geim og féll síðan niður sem stjörnuhrap." „Það er mjög gaman að skoða vefsíðu Elysium Space. Það er nánast eins og verið sé að myndskreyta Lovestar. Ef ég hefði búið til falssíðu, til þess að fylgja þessum hugmyndum í bókinni eftir væri hún ekki ólík þessari síðu.“ „Þetta fer náttúrulega mjög illa í bókinni, þannig að við skulum vona að þetta gangi betur í raunveruleikanum.“
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Sjá meira