Innlent

Vilja raflagnir að Þríhnúkagíg

Valur Grettisson skrifar
Þríhnúkagígur í Bláfjöllum útbúnaði fyrir kvikmyndatöku komið fyrir á gígopinu
Þríhnúkagígur í Bláfjöllum útbúnaði fyrir kvikmyndatöku komið fyrir á gígopinu
Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis hafa lagt til við umhverfis- og auðlindaráðuneytið að raflínur verði lagðar að Þríhnúkagíg til þess að takmarka flutning á olíu um svæðið.

Bréf þess eðlis var lagt fram á fundi umhverfis- og samgöngunefndar Kópavogsbæjar á mánudaginn.

Hátt í 600 lítrar af olíu féllu á bílastæði nærri Bláfjöllum í maí síðastliðnum þegar þyrla hugðist selflytja olíuna að ferðamannastaðnum. Landið er skilgreint sem vatnsverndarsvæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×