Talsmaður Nubo er bjartsýnn Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 14. ágúst 2013 15:54 Samstarfsmenn Huang Nubo funduðu með innanríkisráðherra. „
Ég fór ásamt varaforstjóra Beijing Zhongkun Investment Group, á fund Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra í vor, þegar hún var nýbúin að taka við, segir Halldór Jóhannsson, talsmaður Huang Nubo. Þar kynnti varaforstjórinn fyrir ráðherra hugmyndir fyrirtækisins og áhuga þeirra á að halda verkefninu um uppbyggingu hótels á Grímsstöðum á Fjöllum áfram. Á þeim forsendum þó að íslensk yfirvöld séu því hlynnt og þetta sé fjárfesting sem sé velkomin til Íslands. „Ég er bjartsýnn á að það verði tekið á þessum málum með faglegum hætti á næstunni.“ „Ég hef trú á því að það sé hæft fólk við störf í nýrri ríkisstjórn og þau muni líta til þessara verka og fleiri sambærilegra verka með jákvæðum hætti á allra næstu dögum og vikum. Að það verði tekið á þessum málum með viðskiptalegum hætti, óháð því hvaða landi aðaleigandi er frá. Þannig verði frekar litið til mála út frá þeim viðskiptalegu hagsmunum sem þar kunna að vera fyrir okkur Íslendinga.“ „Huang Nubo hefur enn áhuga á þessum fjárfestingum, þá á fyrri forsendum og ef sú forsenda er til staðar að slík fjárfesting sé velkomin. Eins og margoft hefur komið fram þá fór nefnd um fjárfestingar útlendinga yfir okkar umsókn og mælti með því að gerður yrði fjárfestingasamningur." „En á forsendum sem ég tel að hafi alls ekki verið viðskiptalegs eðlis, þá dagaði það mál uppi. En við teljum og hann telur að fjárfestingin sem slík hafi ekki breyst.“
Mest lesið Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Innlent Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott Innlent Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Innlent Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Innlent Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Erlent Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Erlent Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Innlent Fleiri fréttir Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Telur handtökuna byggja á slúðri Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Aukið aðhald í ríkisfjármálum og lífsbarátta hvals „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn „Það er ekkert verið að innleiða einhver svakaleg próf í Kópavoginum“ Hamarsvirkjun í bið frekar en vernd Gæsluvarðhald leiðbeinandans framlengt Konur með örorkulífeyri líklegri til að vera þolendur ofbeldis Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Höfuðpaur fær þremur mánuðum lengri dóm en burðardýr Veðrið sem hlaupararnir á laugardag geta búist við „Þetta er innrás“ Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Óbreyttir stýrisvextir, samræmd námspróf og breytt snið á Menningarnótt Kjósa um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar í september Enginn handtekinn vegna þjófnaðar á hraðbanka í Mosfellsbæ Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Mínútuþögn á Menningarnótt Kópavogsbær tekur aftur upp samræmd próf „Það er engin sleggja“ Slökktu eld í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Einn hugðist bera sig og ber að ofan öskraði Ísland frumstætt samanborið við Noreg Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór Sjá meira