Húsbílafólk sturtar saur á þvottaplanið Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 14. ágúst 2013 07:00 ,,Ég hleyp út þegar ég sé að menn eru með tilburði til að losa úr bílunum,“ segir Valur en þegar menn koma eftir lokun og losa blasir við honum saurugt þvottaplan. „
Hér á svæðinu eru húsbílaleigur og það virðist sem leigjendum bílanna séu ekki veittar neinar upplýsingar því þeir halda að hér sé einhver losunarstöð fyrir matarúrgang og saur,“ segir Valur Margeirsson, sem rekur söluturninn Fitjavík í Reykjanesbæ. „Þeir henda úr klósettum sínum á þvottaplanið. Þar er rás sem vatnið liggur niður, þeir sturta því þar í og þar syndir þetta,“ útskýrir Valur. „Með matarúrgang, þá er ekkert verið að pæla í hvort tunnurnar séu fullar. Þessu er bara hent fyrir utan, svo kemst fuglinn í þetta og dreifir þessu um allt.“ Valur segist hafa hringt í húsbílaleigur á svæðinu en þær firri sig ábyrgð á málinu. „Það er annaðhvort þannig að þetta lið nennir ekki að sinna vinnunni sinni eða að því er bara alveg sama.“ Hann segir losunaraðstöðu ekki vera til staðar á leigunum sjálfum og því lendi það á honum að taka við úrgangi þar sem bensínstöðin hans sé sú síðasta áður en bílunum er skilað. „Af hverju útbúa ekki húsbílaleigur aðstöðu í sameiningu þar sem fólk getur losað úr án þess að hella þessu öllu yfir mig?,“ spyr Valur. „Ég hefði haldið að það væri lágmarkskrafa að þeir væru með upplýsingar um hvernig ætti að losa þetta.“ Daníel Kjartan Johnson, starfsmaður Ice Rental, húsbílaleigu í Reykjanesbæ, segist agndofa yfir því að menn nýti sér ekki viðskiptamöguleikana. „Lausnin í þessu er sú að hann tæki hreinlega gjald fyrir að fólk sé að henda rusli,“ segir hann. Daníel segist þekkja til vandamáls Vals og hafi borið það undir framkvæmdastjóra sinn að vera tilbúinn með aðstöðu til þess að losa skolp úr bílunum á leigunum. Það sé nú í undirbúningi. Hjá bílaleigunni reyni menn eftir fremsta megni að beina fólki á rétta staði. „Ég talaði líka við þá hjá Skeljungi og bar það undir þá að þeir myndu setja upp losunaraðstöðu á stöðvum sínum. Ég segi fyrir mitt leyti að fyrsta bensínstöðvarkeðjan sem auglýsir losunarstöð á hverri stöð á klárlega eftir að fá alla húsbíla, og viðskiptin sem þeim fylgja, til sín.“
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fleiri fréttir Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Sjá meira