Íslensk glæpasaga í virtu erlendu tímariti Gunnar Leó Pálsson skrifar 14. nóvember 2013 09:45 Ragnar Jónasson glæpasagnahöfundur heldur hér á tímaritinu Ellery Queen's Mystery Magazine. fréttablaðið/valli „
Þetta er sennilega virtasta glæpasagnatímarit heims, það hefur verið til í rúm sjötíu ár og er allavega stærsta svona blaðið í Bandaríkjunum,“ segir Ragnar Jónasson glæpasagnahöfundur sem á smásögu í hinu virta glæpasagnatímariti Ellery Queen‘s Mystery Magazine. Ragnar er fyrstur Íslendinga til að komast í þetta virta tímarit en þar hafa komið sögur eftir marga af þekktustu höfundum sögunnar, á borð við Agöthu Christie, P.D. James og Stephen King. „King hefur kallað tímaritið besta sakamálasögutímarit heims,“ bætir Ragnar við. Saga Ragnars heitir heitir Death of a Sunflower. „Sagan var upphaflega skrifuð í tengslum við bókamessu sem haldin var í Frankfurt en þar var Ísland eins konar heiðursgestur,“ útskýrir Ragnar. Sagan hefur ekki birst á íslensku en hún kom fyrst út í þýskri þýðingu í smásagnasafni árið 2011 undir heitinu Hótel Borg og gerist einmitt á Hótel Borg. „Þetta er glæpasaga sem gerist árið 2008, rétt eftir bankahrunið. Hún segir frá eldri manni sem snýr heim til Íslands til þess að gera upp gamlar syndir, en nákvæmlega hálfri öld áður lést unnusta hans með voveiflegum hætti skammt frá hótelinu.“ Ragnar segist hafa mikinn áhuga á glæpasögum og horfa mikið á glæpaefni í sjónvarpi. Aðspurður um vinnuna við að skrifa skáldsögu segir Ragnar: „Meðgöngutíminn getur alveg verið tvö til þrjú ár og ég er alltaf að skrifa niður hugmyndir. Ég er samt mislengi að skrifa en það tekur nú yfirleitt allavega eitt ár að skrifa eina bók.“ Nýlega kom út fimmta skáldsaga Ragnars sem nefnist Andköf. Hún er fjórða bókin í glæpasagnaseríu en áður höfðu bækurnar Snjóblinda, Myrknætti og Rof komið út. Sagafilm hefur keypt réttinn til að kvikmynda seríuna. „Við erum að þróa þetta ásamt Þorvaldi Davíð Kristjánssyni leikara en það er enn óljóst hvenær þetta fer í framleiðslu,“ bætir Ragnar við.
Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira