Keyrðu mig heim-app væntanlegt Gunnar Leó Pálsson skrifar 14. nóvember 2013 10:15 Ómar Þröstur Hjaltason og Kristinn Sævar Magnússon, stofnendur þjónustunnar Keyrðu mig heim. Eftirspurnin hefur aukist og nýtt app er í smíðum. fréttablaðið/pjetur „
Appið verður fyrir bæði iPhone og Android en það verður tilbúið í janúar, þegar árshátíðatímabilið fer á flug,“ segir Ómar Þröstur Hjaltason, sem er eigandi þjónustunnar Keyrðu mig heim en nýtt app er væntanlegt frá fyrirtækinu. Appið, sem verður frítt, kemur til með að auðvelda þjónustu fyrirtækisins enn frekar, en Optimus margmiðlun sér um að hanna appið. Þar verður hægt að panta, sjá hve mikill biðtími er og hvað þjónustan kostar, ásamt ýmsum öðrum hagnýtum upplýsingum. Fyrirtækið Keyrðu mig heim var stofnað af Ómari Þresti og Kristni Sævari Magnússyni í októbermánuði í fyrra og hefur stækkað mikið síðustu mánuði. „Eftirspurnin hefur aukist mjög mikið undanfarna mánuði, sérstaklega eftir að við fórum að hafa opið á virkum dögum. Fólk sem hefur fengið sér áfenga drykki á viðskiptafundum og mannamótum á virkum dögum nýtir þjónustuna svo dæmi séu tekin,“ útskýrir Ómar. Hjá fyrirtækinu starfa fimm starfsmenn. „Allir þeir sem vinna hjá fyrirtækinu eru vanir ökumenn, allir með meirapróf og vinna við akstur af ýmsu tagi.“ Þjónustan virkar þannig að kúnninn hringir og hittir ökumann hjá bílnum sínum, sem ekur bílnum heim, en oftast fer eigandi bílsins einnig með og sparar sér þá aukinn leigubílakostnað. Fyrirtækið hefur keyrt bíla af öllum stærðum og gerðum fyrir almenning. „Við höfum keyrt allt frá 1983-árgerð af Benz sem kostar kannski fimmtíu þúsund krónur, fram til 2013-árgerð af Range Rover sem kostar líklega um tuttugu milljónir króna,“ bætir Ómar við að lokum. Nánari upplýsingar má finna hér.
Mest lesið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira