Læknadeila á Vestfjörðum: Ungum lækni sagt upp Jón Júlíus Karlsson skrifar 14. nóvember 2013 18:06 Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Mynd/Pjetur „
Þetta gerðu þeir án nokkurs rökstuðnings og án þess að nefna nokkra ástæðu, þrátt fyrir að ég hafi lýst yfir vilja til að vinna við stofnunina út árið, eins og ég er með samning upp á, og jafnvel lengur,“ segir læknirinn Tómas Halldór Pajdak. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða hefur afþakkað vinnuframlag Tómasar Halldórs við stofnunina. Fram kemur í yfirlýsingunni sem BB.is birtir að hluta að framkvæmdastjóri stofnunarinnar, Þröstur Óskarsson, og framkvæmdastjóri lækninga við stofnunina, Þorsteinn Jóhannesson, hafi bannað Tómasi að mæta til vinnu frá og með 12. nóvember. Ágreiningur hefur komið upp innan stofnunarinnar um starfshæfi Þorsteins Jóhannessonar og fór málið inn á borð landlæknisembættisins. Læknar á stofnuninni töldu Þorstein ekki hæfan til að sinna starfi sínu vegna veikinda. Tómas var á meðal þeirra lækna sem gerði athugasemdir við hæfi Þorsteins. „Mér er hulin ráðgáta hvernig þeir, sem ekki hefur gengið vel að reka stofnunina innan ramma fjárlaga þetta árið, ætla að mæta þeim fjárútlátum sem óhjákvæmilega falla til vegna ákvörðunar þeirra en stofnunin þarf t.d. að greiða mér full laun út árið. Mér þykir m.a. mjög miður að hafa óvænt og skyndilega verið sviptur aðstöðu til að fylgja eftir skjólstæðingum sem ég hafði ráðgert að fylgja eftir, sviptur því að sinna heilsugæslu í Súðavík og á Flateyri, og sviptur því að fá að kveðja samstarfsfólk mitt á stofnuninni á eðlilegan hátt. Ég bið skjólstæðinga sem ég hef ekki eða mun ekki hafa samband við á næstunni vegna rannsóknarniðurstaðan eða annars um að erfa það ekki við mig.“
Tengdar fréttir Segja framkvæmdastjóra lækninga óstarfhæfan vegna veikinda Krefjast þess að Þorsteini Jóhannessyni, framkvæmdastjóra lækinga við stofnunina og skurðlækni, verði tafarlaust vikið frá störfum vegna veikinda, dómgreindarleysis og minnistruflana. 3. október 2013 14:44 Óska eftir aðkomu Landlæknisembættisins Þröstur Óskarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, óskaði í gærkvöldi formlega eftir aðkomu Embættis landlæknis í að leysa deilu sem komið hefur upp meðal lækna hjá stofnuninni. 4. október 2013 13:58 Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira
Segja framkvæmdastjóra lækninga óstarfhæfan vegna veikinda Krefjast þess að Þorsteini Jóhannessyni, framkvæmdastjóra lækinga við stofnunina og skurðlækni, verði tafarlaust vikið frá störfum vegna veikinda, dómgreindarleysis og minnistruflana. 3. október 2013 14:44
Óska eftir aðkomu Landlæknisembættisins Þröstur Óskarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, óskaði í gærkvöldi formlega eftir aðkomu Embættis landlæknis í að leysa deilu sem komið hefur upp meðal lækna hjá stofnuninni. 4. október 2013 13:58