Óska eftir aðkomu Landlæknisembættisins Jón Júlíus Karlsson skrifar 4. október 2013 13:58 Geir Gunnlaugsson mun aðstoða við að finna laus á deilum hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
Þröstur Óskarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, óskaði í gærkvöldi formlega eftir aðkomu embættis landlæknis í að leysa deilu sem komið hefur upp meðal lækna hjá stofnuninni. Fimm læknar við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða sendu framkvæmdastjóra stofnunarinnar bréf fyrir mánuði og kröfðust þess að Þorsteini Jóhannessyni, framkvæmdastjóra lækninga við stofnunina og skurðlækni, yrði tafarlaust vikið frá störfum vegna veikinda, dómgreindarleysis og minnistruflana. Þröstur hitti Geir Gunnlaugsson, landlækni, í s.l. viku þar sem þeir fóru yfir þá stöðu sem komin er upp hjá stofnuninni. Í framhaldi þessa hefur Þröstur upplýst landlækni um framvindu mála. Í þessum samræðum hefur landlæknir lagt áherslu á að farsælast væri að starfsmannavandi af þessum toga yrði leystur á vettvangi, þ.e. að stjórnendur stofnununarinnar myndu leysa málið. Í bréfi í gær fer forstjóri stofnunarinnar síðan formlega fram á það að embættið leggi mat á starfshæfni umrædds læknis. „Embættið hefur lögbundnum skyldum að gegna og á fundi í morgun fór ég ásamt samstarfsfólki yfir það hver aðkoma embættisins ætti að vera í þessu máli. Embættið hefur verið upplýst um gang mála frá því að málið kom upp en við höfum hingað til lagt áherslu á að stofnunin leysi málin innan sinna raða. Við munum skoða vandlega í kjölfar bréfs forstjórans á hvern hátt embættið eigi að koma að þessu máli út frá verk- og valdsviði þess,“ segir Geir í samtali við Vísi. Læknarnir telja að Þorsteinn sé hvorki fær til að framkvæma aðgerðir á sjúklingum né standa skurðlæknavaktir vegna veikinda sem hann eigi við að stríða. Þorsteinn vísar þessum fullyrðingum kollega sinna á bug en hefur þó fallist á að fara í veikindaleyfi. Hann snéri aftur til starfa í síðustu viku. Landlæknir segir stöðuna á stofnuninni alvarlega. „Þetta er greinilega birtingarmynd samstarfsörðugleika sem virðast eiga sér djúpar rætur. Mér er mikið í mun að þetta mál leysist og mun bregðast við í samræmi við lögbundnar skyldur embættisins.“
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Sjá meira