Skagamenn fallnir í fjórða sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. september 2013 22:50 Bræðurrnir Bjarni og Jóhannes Karl Guðjónssynir eru með lið sín á sitthvorum enda töflunnar. Mynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson
Skagamenn féllu í kvöld úr Pepsi-deild karla í fótbolta og spila því í 1. deildinni sumarið 2014. Þetta er í fjórða sinn sem Skagaliðið fellur úr efstu deild. Skagamenn féllu einnig úr deildinni 1967, 1990 og 2008. Skagamenn komust strax upp aftur árin 1968 og 1991 og urðu í kjölfarið Íslandsmeistarar 1970 og 1992 en liðið var þrjú tímabil í B-deildinni þegar liðið fór síðast niður fyrir fimm árum síðan. Skagaliðið var á sínu öðru ári í deildinni eftir að hafa náð sjötta sætinu í fyrra. Þá fékk liðið 14 af 32 stigum sínum í fyrstu sex umferðunum og sat í toppsæti deildarinnar í lok maí. Síðan þá hefur leiðin legið niður á við og Skagamenn hafa aðeins náð í 8 stig í 19 leikjum í Pepsi-deildinni í sumar. Tapið í kvöld var það sjötta hjá liðinu á heimavelli í sumar en það er þó skelfilegur árangur á útivelli sem er að fara með liðið niður. ÍA hefur aðeins náð í 1 stig af 30 mögulegum á útivelli í sumar. Skagamenn eiga þó úrvalsdeildarlið á næsta ári því stelpurnar tryggðu sér sæti í Pepsi-deildinni í sumar og halda því uppi heiðri Skagamanna í deild þeirra bestu næsta sumar.Fallnir í fjórða sinn.ÍA 6. sæti af 6 liðum 1967 4 stig af 20 mögulegum - féll 3. september þegar KR náði í stig á móti ÍBA á AkureyriÍA 10. sæti af 10 liðum 1990 11 stig af 54 mögulegum - féll 8. september eftir 1-3 tap á heimavelli á móti KRÍA 12. sæti af 12 liðum 2008 13 stig af 66 mögulegum - féll 18. september eftir markalaust jafntefli á heimavelli á móti KRÍA 12. sæti af 12 liðum 2013 8 stig af 57 mögulegum (3 leikir eftir) - féll 18. september eftir 0-5 tap á móti Víkingi Ó. á heimavelli
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þorleifur: Ég verð ekki með liðið á næsta ári Körfubolti Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Enski boltinn Sjáðu markið sem skaut Arsenal áfram í úrslitaleikinn Fótbolti Mikið tap á rekstri HSÍ: „Verulegar áhyggjur“ Handbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna fyrir oddaleik gegn Tindastól Körfubolti Saka skaut Arsenal áfram í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Fótbolti Áfram þrátt fyrir tap í Íslendingaslag Handbolti Vildi fara heim: Seldur aftur til Þróttar eftir aðeins fimm mánuði í FH Íslenski boltinn Uppgjör: Njarðvík - Grindavík 83-72 | Njarðvíkingar sigldu í úrslitaeinvígið Körfubolti Hulda: Náðum góðum stoppum og þá kemur sóknin Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Fram - Þróttur 0-3 | Þróttur áfram á sigurbraut en Fram ennþá án stiga Vildi fara heim: Seldur aftur til Þróttar eftir aðeins fimm mánuði í FH Hermann: Góðlátlegt grín en ekkert ofbeldi Sagan segir að KR verði meistari „Sem betur fer slapp þetta“ „Hefði viljað fá tvær vítaspyrnur“ Ísak og Sverrir fengu báðir heilahristing „Ekki í fyrsta sinn sem við komum til baka á þessum velli“ „Eigum að díla betur við svona stöður“ „Vitum að þessir gæjar búa yfir gríðarlegum gæðum“ Uppgjörið: FH - Fram 3-4 | Fyrirliðinn tryggði endurkomusigurinn Uppgjörið: Keflavík - Víkingur 1-3 | Víkingur sótti stigin þrjú suður með sjó Kennir vallaraðstæðum um: „Sérstaklega þurr og stamur“ ÍBV - Breiðablik 1-2 | Hægt og hugmyndasnautt Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 1-2 | Fyrsti sigur Skagamanna kom gegn bitlausum Stjörnumönnum Sjáðu mörk KR-inga á Hlíðarenda Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð „Eins og stúdentsprófin í MR“ „Það fer í taugarnar á mér“ „Erum með montréttinn á Akureyri“ „Gerist eiginlega ekki betra“ Þór Ak. - KA 0-1 | Hallgrímur tryggði sætan sigur „Aðeins loðað við okkur að mikið sé gert úr öllu“ „Held að Valur sæki engan gríðarlegan styrk í það“ Sjáðu mörkin síðast þegar Þór og KA áttust við Situr límdur við skjáinn yfir leikjum KR Þróttur og HK á toppnum Sjáðu mörkin úr endurkomunni í Eyjum Skellt í lás eftir afhroðið Sjá meira