Reyna að fæla síld með upptökum af háhyrningum Svavar Hávarðsson skrifar 26. nóvember 2013 06:15 Látið verður reyna á fælingarmátt háhyrninganna til að reka síld út úr Kolgrafafirði. fréttablaðið/óskar
Hafrannsóknastofnun setti niður sérstakan búnað í Kolgrafafirði í gær sem spilar upptökur af háhyrningum við síldarát. Með þessu freista menn þess að fæla síldina út úr firðinum. Vöktun í innri hluta fjarðarins hefur verið aukin til muna. Smábátar mega veiða innan brúar enn um sinn. Hópur ráðuneytisstjóra fundaði í gær til að fara yfir ástandið í Kolgrafafirði. Meðal þess sem þar var rætt var möguleiki á að rjúfa þverun fjarðarins og opna hana frekar í því skyni að auka sjóflæði og bæta súrefnisstöðu. Ljóst er að slík framkvæmd mun taka nokkrar vikur og óvíst er hvort hún hefði tilætluð áhrif. Hafrannsóknastofnun og Vegagerðin hafa unnið að rannsóknum og mati á þessum möguleika í nokkra mánuði og munu senda greinargerð um niðurstöður sínar á næstu dögum. Komið hefur verið fyrir nettengdum búnaði, þar til gerðri bauju, sem gefur stöðugar upplýsingar um súrefnismettun. Með þessu móti má sjá strax ef hættuástand skapast. Eins var komið fyrir fælibúnaði í gær.Þorsteinn SigurðssonÞorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri á Hafrannsóknastofnun, segir að reynt verði að fæla síldina burt með hljóðum frá háhyrningum við síldarát. Þetta sé þekkt aðgerð, sem vert sé að láta reyna á nú. Hvað varðar súrefnismettun í firðinum þá var hún 70-80% á sunnudag sem er langt frá því að vera krítískt ástand. „Þegar síldin hefur verið að drepast hefur súrefnismettunin farið niður í 20%,“ segir Þorsteinn og bætir við að samhliða auknum vindi í firðinum í gær aukist súrefnismettunin. Það er því ekki hætta á stórfelldum síldardauða á allra næstu dögum, segir í tilkynningu eftir fund ráðuneytisstjóra í gær. Þekkt er að samspil nokkurra þátta þarf að koma til; þéttleiki síldarinnar og stillt veðurfar, sem orsakar verulegt fall í súrefnismettun eins og varð í fyrra. Hafrannsóknastofnun mun fara og mæla magn síldar í Kolgrafafirði, en það verður ekki gert fyrr en veðuraðstæður verða ákjósanlegar. Eins og sagt hefur verið frá hugðust heimamenn koma upp löndunaraðstöðu í Kolgrafafirði. Fréttablaðinu skilst að hætt hafi verið við þessi áform. Eins kom fram á fundinum að veiðar smábáta verða leyfðar áfram, en á fundinum lýstu menn yfir áhyggjum af öryggismálum vegna veiðanna.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Sjá meira