Stjórnarandstæðingar fangelsaðir Birgitta Jónsdóttir skrifar 1. desember 2013 06:00 Stundum eru orð talin svo hættuleg að fólk er pyntað, það hverfur eða er svipt frelsi sínu án dóms og laga, eins og er tilfellið í Barein nú um stundir. Fljótlega eftir öldu mótmæla sem hófust árið 2011 voru 13 stjórnskipunarandstæðingar handteknir. „Glæpur“ þeirra var að tjá sig um ósk um að samfélagsgerð þeirra yrði breytt úr konungsveldi í lýðræði og að spillingunni myndi linna. Þeir sem tilheyra þeim samfélagshópi í Barein sem skilgreindur er sem stjórnarandstaða með skoðanir sem ná eyrum almennings eru ógn í hugum valdhafa og þeir yfirleitt teknir úr umferð eins og raunin varð með ræðumennina 13 sem voru fangelsaðir í upphafi friðsælla mótmæla í Barein. Mennirnir áttu það sammerkt að hafa haldið ræður á Perlutorginu á hverju kvöldi á meðan á mótmælunum stóð. Eftir að hafa verið pyntaðir í fangelsinu í tvo mánuði, hættu pyntingarnar vegna þeirrar alþjóðaathygli sem mál þeirra vakti, m.a. vegna aðgerða um stöðu þeirra hjá Amnesty International, en samtökin sérhæfa sig í að vekja athygli m.a. á samviskuföngum sem sæta hrottalegri meðferð. Af þessum 13 mönnum sem voru ákærðir fengu 6 þeirra lífstíðardóm, 5 fengu 15 ára fangelsisdóm og 2 fengu 2 ár. Allir eiga þeir við langvarandi veikindi að stríða og þjást vegna þeirra linnulausu pyntinga sem þeir voru beittir. Reynt var að kæfa orð þeirra en við getum tryggt að það takist ekki. Við sem búum við almennt tjáningarfrelsi, í landi þar sem enginn situr í fangelsi vegna skoðana sinna, getum gert eitthvað til að þrýsta á breytingar. Við getum sýnt samviskuföngum stuðning með því að taka þátt í bréfamaraþoni Amnesty International, m.a. fyrir fanga sem búa við að lífi þeirra og heilsu er ógnað. Sagan hefur sýnt að það hefur bjargað mörgum frá hörmulegum örlögum. Taktu þátt í bréfamaraþoni Íslandsdeildar Amnesty International um land allt dagana 6. til 16. desember. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Skoðun Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar Sjá meira
Stundum eru orð talin svo hættuleg að fólk er pyntað, það hverfur eða er svipt frelsi sínu án dóms og laga, eins og er tilfellið í Barein nú um stundir. Fljótlega eftir öldu mótmæla sem hófust árið 2011 voru 13 stjórnskipunarandstæðingar handteknir. „Glæpur“ þeirra var að tjá sig um ósk um að samfélagsgerð þeirra yrði breytt úr konungsveldi í lýðræði og að spillingunni myndi linna. Þeir sem tilheyra þeim samfélagshópi í Barein sem skilgreindur er sem stjórnarandstaða með skoðanir sem ná eyrum almennings eru ógn í hugum valdhafa og þeir yfirleitt teknir úr umferð eins og raunin varð með ræðumennina 13 sem voru fangelsaðir í upphafi friðsælla mótmæla í Barein. Mennirnir áttu það sammerkt að hafa haldið ræður á Perlutorginu á hverju kvöldi á meðan á mótmælunum stóð. Eftir að hafa verið pyntaðir í fangelsinu í tvo mánuði, hættu pyntingarnar vegna þeirrar alþjóðaathygli sem mál þeirra vakti, m.a. vegna aðgerða um stöðu þeirra hjá Amnesty International, en samtökin sérhæfa sig í að vekja athygli m.a. á samviskuföngum sem sæta hrottalegri meðferð. Af þessum 13 mönnum sem voru ákærðir fengu 6 þeirra lífstíðardóm, 5 fengu 15 ára fangelsisdóm og 2 fengu 2 ár. Allir eiga þeir við langvarandi veikindi að stríða og þjást vegna þeirra linnulausu pyntinga sem þeir voru beittir. Reynt var að kæfa orð þeirra en við getum tryggt að það takist ekki. Við sem búum við almennt tjáningarfrelsi, í landi þar sem enginn situr í fangelsi vegna skoðana sinna, getum gert eitthvað til að þrýsta á breytingar. Við getum sýnt samviskuföngum stuðning með því að taka þátt í bréfamaraþoni Amnesty International, m.a. fyrir fanga sem búa við að lífi þeirra og heilsu er ógnað. Sagan hefur sýnt að það hefur bjargað mörgum frá hörmulegum örlögum. Taktu þátt í bréfamaraþoni Íslandsdeildar Amnesty International um land allt dagana 6. til 16. desember.
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar