Kýs gagnrýni fram yfir hrós Marín Manda skrifar 1. desember 2013 15:00
Ragnar Sigurðsson knattspyrnumaður var spurður spjörunum úr í vikunni. Lífið komst að því að hann er einstaklega hreinskilinn á köflum og á það til að stara á frægt fólk. Nafn? Ragnar SigurðssonAldur? 27 áraStarf? KnattspyrnumaðurHvern faðmaðir þú síðast? Ég faðmaði Sölva Ottesen þegar ég kvaddi hann í Króatíu eftir landsliðsferðina.En kysstir? Ég kyssti líka Sölva Ottesen.Hver kom þér síðast á óvart og hvernig? Vinur minn sem var ekki beint að koma mér á óvart en það kom mér hins vegar mjög mikið á óvart þegar ég sá hann rífa sigg af stóru tánni á sér og borða það.Hvaða galla í eigin fari ertu búinn að umbera allt of lengi? Ég er búinn að vera neikvæður og þrjóskur alltof lengi.Ertu hörundsár? Ég held alveg örugglega að ég sé ekki hörundsár, kýs allavega gagnrýni fram yfir hrós.Dansarðu þegar enginn sér til? Já, ég dansa einungis þegar enginn sér til.Hvenær gerðirðu þig síðast að fífli og hvernig? Ég man ekki hvenær ég gerði mig síðast að fífli, því miður, en ég er alltaf að segja eitthvað heimskulegt og óúthugsað við fólk. Ég sagði til dæmis einu sinni við liðsfélaga minn í Svíþjóð að mér þætti kærastan hans „ekkert svakalega sæt“.Hringirðu stundum í vælubílinn? Ég veit ekki alveg hvað það þýðir að hringja í vælubílinn en þegar væluþörfin kemur þá hringi ég í bestu vini mína og væli aðeins í þeim.Tekurðu strætó? Ég tek aldrei strætó en ég tek oft metró. Hvað eyðirðu miklum tíma á Facebook á dag? Ég eyði alltof miklum tíma á Facebook og hata mig líka fyrir það.Ferðu hjá þér þegar þú hittir fræga eða heilsarðu þeim? Hvorugt, en ég stari stundum á þá.Lumarðu á einhverju sem fáir vinir þínir vita um þig? Það vita það ekki margir en ég er viss um að það komi samt engum vini mínum á óvart að metið mitt í að leysa 3x3 Rúbiks-tening er 1 mínúta og 13 sekúndur.Hvað ætlarðu alls ekki að gera um helgina? Um helgina ætla ég alls ekki að pirra mig á vælu- og sleikjustatusum hjá fólki á Facebook.
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira