Sveitarfélög draga siðareglur á langinn Freyr Bjarnason skrifar 11. desember 2013 07:00 Kópavogur var fyrsta sveitarfélagið sem setti sér siðareglur og í humátt á eftir kom Reykjavík. fréttablaðið/pjetur
Um fjörutíu sveitarfélög af 75 hafa ekki sett sér siðareglur eins og sveitarstjórnarlög frá 1. janúar 2012 kveða á um. „Við höfum verið að hvetja þau áfram í þessu,“ segir Guðjón Bragason, sviðsstjóri lögfræði- og velferðarsviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga, spurður út í seinaganginn. Í 29. grein sveitarstjórnarlaganna segir meðal annars að öllum kjörnum fulltrúum í sveitarstjórn og nefndum og ráðum sem sveitarstjórn skipar ber að haga störfum sínum í samræmi við settar siðareglur. „Sveitarfélögin eiga að vera búin að þessu og það er enginn skortur á leiðbeiningum um það. Það er sérstök síða um siðamál á heimasíðu sambandsins sem við höfum vísað mikið á,“ segir Guðjón. Samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu er hugsanlegt að hluti sveitarfélaganna fjörutíu vilji nota áfram eldri siðareglur sem þau hafi sett sér en eigi eftir að leita staðfestingar hjá ráðuneytinu um að fá að nota þær. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur heldur ekki skipað nefnd sem skal gefa álit um siðareglur og ætluð brot á þeim. Þau sveitarfélög sem hafa þegar sett sér siðareglur geta því ekki vísað málum til nefndarinnar, þar sem hún er ekki til staðar. Guðjón viðurkennir að stofnun nefndarinnar hafi dregist á langinn en tekur fram að eftirspurnin eftir henni hafi ekki verið til staðar hjá sveitarfélögum. „Ég get sagt það hreint út að þetta mál hefur ekki verið í efsta forgangi hjá okkur. Innleiðing þessara sveitarstjórnarlaga er heilmikið dæmi, þar sem menn lögðu áherslu á fjármálareglurnar. Síðan hafa þessi verkefni verið að koma koll af kolli.“ Hann segir undirbúninginn fyrir því að koma nefndinni á laggirnar vera þokkalega langt kominn. Markmiðið er að þrír óháðir aðilar verði í nefndinni og verður hún skipuð til fjögurra ára í senn. Einn aðili verði með sérþekkingu á siðfræði, annar á lögfræði og sá þriðji með víðtæka reynslu af sveitarstjórnarmálum. „Þessi nefnd var ekki hugsuð sem úrskurðarnefnd um ágreining. Hún á að reyna að vera styðjandi við þetta ferli. Veita almenn sjónarmið, frekar en að höggva á hnúta í erfiðum málum. Best væri ef hún hefði sem minnst að gera,“ segir Guðjón.Kópavogur fyrst til að skila Kópavogur var fyrsta sveitarfélagið til að skila siðareglum. Á meðal annarra sem eru búin að því eru Reykjavík, Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Reykjanesbær, Borgarbyggð, Seltjarnarnes, Árborg, Seyðisfjörður, Blönduósbær, Skagafjörður og Ásahreppur.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Ljúfsárt að opna loks nýtt og stærra Kvennaathvarf Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira