Framlög til heilbrigðismála aukin um fjóra milljarða Heimir Már Pétursson skrifar 11. desember 2013 13:04 Ríkisstjórnin leitar dyrum og dyngjum á síðustu stundu að leiðum til að spara og auka tekjur ríkissjóðs til að auka framlög til heilbrigðismála og skila hallalausum fjárlögum mynd/gva
Stjórnarflokkarnir vinna nú hörðum höndum að því að móta breytingatillögur sínar fyrir aðra umræðu fjárlaga sem hefst á Alþingi á morgun. Yfirstjórnum allra ráðuneyta verður gert að skera niður um fimm prósent. Tillögur Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um lækkun hámarks barnabóta sem afgreiddar voru úr ríkisstjórn fyrir helgi nutu ekki stuðnings í þingflokkum stjórnarflokkanna, alla vega ekki allra þingmanna Framsóknarflokksins. Ekki liggur fyrir hvernig fer fyrir hugmyndum um lækkun hámarks vaxtabóta. Bjarni segir menn vera að skoða alla kosti til að tryggja tæplega fjögurra milljarða aukaframlag til heilbrigiðsþjónustunnar án þess að fórna markmiði um hallalaus fjár. Hann vill þó ekki lofa að 500 milljóna afgangur verði á fjárlögunum, eins og gert sé ráð fyrir.Hvar fannst matarholan?„Það er kannski rétt að tala um þessar tillögur þegar þær eru fullbúnar og frágengnar frá fjárlaganefndinni. Málið er jú enn á forræði fjárlaganefndar. En ég hef verið að starfa með nefndinni að binda lausa enda og ég horfi bæði á tekju- og útgjaldahliðina. Það er hægt að fara í þetta án þess að að fara í skerðingu á barnabótum,“ segir fjármálaráðherra. En þær hafi hækkað verulega á þessu ári og verði langt um hærri á næsta ári en þær voru árin 2011 og 2012.En hvað með vaxtabæturnar?„Vaxtabæturnar munu taka nokkrum skerðingum hjá þeim sem hæstar hafa tekjurnar,“ segir Bjarni. Til að mæta ýmsum breytingum á fjárlagafrumvarpinu sem þýða aukin útgjöld ríkissjóðs segir Bjarni að skera verði meira niður á öðrum stöðum. „Við munum gera aukna, viðbótar aðhaldskröfu, á ráðuneytin. Á skrifstofu ráðuneytanna. Það er um það bil jafnhá fjárhæð eins og hefði að öðru óbreyttu mögulega farið í skerðingar á barnabótum. Það eru ýmsar aðrar niðurskurðartillögur sem liggja á borðinu hér og hvar í fjárlagafrumvarpinu. Engir stórir berandi liðir. En við erum líka að sækja tekjur á tekjuhliðinni m.a. vegna þess að horfurnar á árinu 2014 eru aðeins að skána,“ segir Bjarni Benediktsson.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Sjá meira