Helgi sá ekki Vigdísi: "Margt sem augað nemur ekki“ Kristján Hjálmarsson og Stefán Árni Pálsson skrifar 11. desember 2013 16:46
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður fjárlaganefndar, svaraði í ræðu á Alþingi í dag gagnrýni Helga Hjörvars, þingmanns Samfylkingarinnar, um að hún hafi ekki verið viðstödd umræður um fjáraukalögin í gær. Vigdís sagði í ræðu sinni að á myndskeiði sæist að hún hefði verið í salnum þegar Helgi var að lýsa eftir henni. Hún sagði jafnframt að það væri margt sem augað sæi ekki en Helgi Hjörvar er nánast blindur. „Maður undrast að meirihluti fjárlaganefndarinnar sé ekki hér til þess að verja verk sín,“ sagði Helgi Hjörvar í ræðu sinn á Alþingi í gær þegar umræður um fjáraukalögin fóru fram. Hann gagnrýndi hversu slök mætingin á Alþingi væri og þá sérstaklega hjá þeim þingmönnum sem sitja í fjárlaganefnd. Hann gagnrýndi einnig fjárlagatillögur nefndarinnar og kallaði þær sullumbull og skítamix. „Er það ekki einfaldlega skýringin á því að háttvirtur þingmaður Vígdís Hauksdóttir og háttvirtur þingmaður Guðlaugur Þór Þórðarson eru bara ekkert í salnum því þetta eru einfaldlega tillögur sem ekki samræmast þeim lágmarkskröfum sem verður að gera til meðferðar fjáraukalaga hér í þingi,“ sagði Helgi. Þegar Helgi lét orðin falla gekk Vígdís í sömu mund framhjá ræðupúltinu og svo virðist sem Helgi hafi ekki áttað sig á því að hún var salnum. Helgi hafði 40 mínútum áður lýst eftir formanninum í ræðu sinni og má heyra hljóðupptöku úr hádegisfréttum Bylgjunnar þar sem heyrist í þingmanninum Helga Hjörvari. Vigdís svaraði Helga hins vegar í dag og sagði: „Ég vil aðeins slá á þær raddir sem hafa verið hér á Alþingi í dag um að formaður fjárlaganefndar hafi ekki verið hér í þinghúsinu í gær. Ég var stödd hér allt til enda fundarins en það vildi þannig til að þegar ræða háttvirts þingmanns Helga Hjörvars er skoðuð þá sést glögglega að ég labba framhjá ræðupúltinu. En það er virðulegi forseti margt sem augað nemur ekki.“Hér að ofan má sjá ræðu Vigdísar Hauksdóttir frá því á Alþingi í dag.
Mest lesið Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Innlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Innlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Fleiri fréttir Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Sjá meira