Helköttuð amma einbeitt fyrir mót Ellý Ármanns skrifar 25. október 2013 10:15 „
Það eru tæpar tvær vikur í mót," segir amman, snyrtimeistarinn og fitnessdrottningin Lilja Ingvadóttir, 41 árs, sem starfar á snyrtistofunni Mizu þegar við forvitnumst hvernig undirbúningurinn gengur hjá henni fyrir Bikarmót Alþjóðasambands líkamsræktarmanna IFBB sem fram fer í Háskólabíói en þar keppir Lilja í fitnessflokki kvenna 35 ára og eldri.Einbeittari en áðurHvernig gengur? „Mér hefur gengið mjög vel. Ég hef verið mjög einbeitt, aðeins harðari við sjálfan mig og nýtt mér reynsluna frá fyrsta mótinu sem ég tók þátt í um páskana í fyrra. Garðar Sigvaldason þjálfari hefur líka verið enn harðari við mig enda þekkir hann orðið stelpuna vel og þau þolmörk sem ég hef," segir Lilja. „Ég hef haft meiri ánægju af þessum undirbúningi þar sem öryggið er meira. Ég er sífellt að bæta í reynslubankann."Nýjar áherslur - einfalt fæði „Nú er aðaláherslan að vera betur skorin á keppnisdegi en síðast en það þarf meiri vöðvaskurð í fitnessflokki en til dæmis í módelfitness til að sýna betur fram á vöðvamassann sem maður hefur verið að vinna að síðastliðna mánuði." „Ég er að taka mikið brennsluæfingar og lyfti léttar til að tóna vöðvana betur. Fyrir utan það er ég á mjög einföldu fæði núna síðustu vikurnar. Ég nærist á proteini, olíum, kjöti og grænmeti," útskýrir hún.Reynir að stinna húðina „Fyrir mig þá hefur mikil vinna farið í húðina og að stinna hana – og það hef ég gert bæði í Bailine vaxtarmótun og Systraseli. Eflaust vegna þess að ég var aðeins stærri hér áður fyrr – en ég hef náð ofsalega góðum árangri sem hefur tekið sinn tíma. Ekkert nema þolinmæðin þar. En þessa dagana og fram að móti erum við að tala um að æfa vel sviðsframkomu, stöður og pósur. Því allt snýst þetta á endanum um að sýna sem best þá vinnu sem ég er búin að leggja á mig síðastliðinn mánuði og ár sem og flotta sviðsframkomu sem skiptir gríðarlegu máli. Þannig að það er að mörgu að hyggja."Lilja fyrir fjórum árum - 35 kg þyngri en hún er í dag.Lilja er í hörkuformi og æfir stíft þessa dagana.Gleðin og ánægjan skiptir máli „Ég stefni á að koma enn sterkari á mótið núna. Vera sátt við formið og hafa gleði og ánægju við völd. Að sjálfsögðu vill maður komast á pall og vinna. En ég mun keppa í flottum hópi íslenskra kvenna og það eitt er frábært að geta verið í þeim hópi - sátt og ánæg," segir Lilja að lokum. Garðar þjálfari Lilju er með vefsíðuna matardagbok.is.
Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fleiri fréttir „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Sjá meira