Innlent

Leiðbeinendur í flotgalla en börnin ekki

Valur Grettisson skrifar
Þorlákshöfn Krakkarnir stukku út í sjóinn á þriðjudaginn var.
Þorlákshöfn Krakkarnir stukku út í sjóinn á þriðjudaginn var. Fréttablaðið/GVA
Hörður Már Harðarson
„Þetta er umhugsunarvert auðvitað,“ segir Hörður Már Harðarson, formaður Landsbjargar, en björgunarsveitin Mannbjörg í Þorlákshöfn lét börn á fermingaraldri stökkva ofan í höfnina án þess að klæða þau í flotbúninga. Um æfingu var að ræða á svokölluðu strumpanámskeiði fyrir unglinga sem vilja komast í björgunarsveitina. Tilgangur æfingarinnar var sá að leyfa börnunum að finna fyrir kulda sjávar en börnin stukku ofan í sjóinn á þriðjudagskvöldið var.

Niðurstaðan varð þó sú að eitt barnið, þrettán ára stúlka, gleypti sjó og átti erfitt með andardrátt vegna kuldans. Stúlkunni var ekið til foreldra sinna eftir atvikið en henni varð ekki meint af volkinu.

Annað foreldri hafði samband við fréttastofu og gagnrýndi að börnin hefðu ekki verið í flotgöllum, þótt þau hefðu verið í björgunarvestum þegar þau stukku út í sjóinn. Eitt foreldri meinaði meðal annars barni sínu að taka þátt í æfingunni. Þá staðfestir formaður björgunarsveitarinnar í Þorlákshöfn, Ásgeir Guðmundsson, að leiðbeinendur hefðu verið í flotgöllum. Aðspurður hvers vegna börnin fóru ekki líka í flotgalla svaraði hann: „Ef það hefðu verið til gallar á þau hefðu þau auðvitað farið í þá.“

Ásgeir útskýrði fyrir fréttamanni að æfingin væri ekki óeðlileg. Hann benti einnig á að leiðbeinendur hefðu gætt að börnunum á meðan þau stukku ofan í sjóinn, auk þess sem teppi hefðu verið á bakkanum. Hann sagði mikilvægt að börnin áttuðu sig á aðstæðum, „svo hafa þau bara gaman af þessu,“ bætti hann við.

Hörður Már segir mikilvægt að það komi fram að börnin hafi stokkið ofan í sjóinn af fúsum og frjálsum vilja. „Og þarna voru menn við fullkomnar aðstæður, björgunarsveitarmaður var í sjónum og fleiri fylgdust með,“ bendir Hörður á.

Spurður um áhyggjur foreldra svarar hann: „Ég skil afstöðuna, við viljum auðvitað forðast að stefna fólki í óþarfa hættu og höfum sérstakar siðareglur hvað það varðar.“

Hörður telur þó atvikið hafa verið innan marka. „En við munum auðvitað skoða verkferla og málið verður kannað gaumgæfilega,“ bætir hann við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×