Framkvæmdir í miðbænum ógna jólaverslun Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 4. desember 2013 10:19 Framkvæmdum við Hverfisgötu fer senn að ljúka og er vonast til að verkinu verði að mestu lokið um miðjan desember. Mynd / Vilhelm „
Þessar framkvæmdir á Hverfisgötu hafa áhrif á Laugaveginn og náttúrulega sérstaklega á þá sem eru í hliðargötum og á Hverfisgötu. Ég myndi ekki vilja vera í þeirra sporum,“ segir Hákon Jónsson, framkvæmdastjóri Jóns og Óskars á Laugaveginum. Hann segir jólaverslun hafa farið rólega af stað í miðbænum og hann hafi áhyggjur af því að framkvæmdir á Hverfisgötu muni hafa slæm áhrif á hana í desember. „Fólk nennir ekki að standa í veseni. Ef það heldur að það sé vesen að komast leiðar sinnar þá fer það mögulega eitthvert annað.“ Hugrún Dögg Árnadóttir, eigandi Kronkron, er fegin að það sé búið að opna Hverfisgötuna hjá hennar verslun. „Það væri náttúrulega rosa gott ef gatan væri opnuð fyrir jól. Við erum búin að finna fyrir þessu í allt sumar. En við erum borubrött og bjartsýn fyrir jólin.“ Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar, segir að verklok við Hverfisgötu hafi átt að vera í lok nóvember samkvæmt upphaflegum áætlunum. „Þetta mun að mestu klárast um miðjan desember. Núna eru margir mikilvægir kaflar að klárast en eitthvað klárast ekki fyrr en eftir jól. Reykjavíkurborg skilur áhyggjur rekstraraðila í miðborginni og allt kapp verður lagt á að hraða framkvæmdum eins og unnt er.“Jakob Frímann Magnússon, miðborgarstjóri, segir stemninguna alltaf vera til staðar í miðbænum fyrir jólin. Mynd / ValliSamt alltaf stemning í miðbænum „Auðvitað er hættulegt að standa í framkvæmdum á háannatíma en góðu fréttirnar eru að þetta mun skila miðborginni einhverri glæsilegustu götu sem hefur sést í borginni,“ segir Jakob Frímann Magnússon, miðborgarstjóri. „En stemningin er til staðar í miðbænum þrátt fyrir framkvæmdir. Það hefur verið lagt meira í jólaskreytingar og viðburðahald. Frá og með 12. desember verður opnunartími lengdur og fólk getur notið verslana, veitingastaða og alls þess sem miðbærinn hefur upp á að bjóða.“
Mest lesið Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Innlent Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið Innlent Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Innlent Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Veður Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Innlent Fleiri fréttir Þrjú alvarleg ofbeldisbrot Hvetja stjórnvöld til að binda enda á „villimannslegar“ hvalveiðar Rabarbari hafinn til vegs og virðingar á Blönduósi Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Langreyðarnar komnar á land Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Íris Edda ráðin sveitarstjóri á Vopnafirði Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig 86 prósent horfðu ekki á úrslit Eurovision Ráðherra vill varamótor Herjólfs tiltækan hérlendis Pólitískur ólgusjór í Bretlandi, hvalveiðar og banvæn hitabylgja „Best að taka menn og sekta duglega“ Briddsarar í toppformi leggjast í víking til Ríga Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Slagsmál tveggja í Kópavogi enduðu á slysadeild Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Aldrei fleiri fengið úthlutaða skólavist Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka BSO-stöðin komin á nýtt heimili Hrafni bjargað af þaki Byko Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Sjá meira