Sérsveitin kölluð til Sauðárkróks: Maðurinn hótaði að beita skotvopni Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 4. desember 2013 15:54 „
Maðurinn hótaði að beita skotvopni og við fengum aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra," segir Stefán Vagn Stefánsson, yfirvarðstjóri lögreglunnar á Sauðárkróki. Maðurinn hringdi rétt fyrir eitt og var lögreglan komin með svokallaðan sjónpóst á húsið örstuttu eftir það. „Við reyndum að ræða við hann og fá hann til að gefast upp. Það gekk ekki en eftir mikið þref hleypti hann okkur inn og við handtókum hann," segir Stefán. Maðurinn var handtekinn klukkan 15.40. Stefán Vagn getur ekki tjáð sig um það að svo stöddu um hvort skotvopn hafi fundist á heimili mannsins. Maðurinn á við geðræn vandamál að stríða og hefur áður komist í kast við lögin. Hafsteinn Hannesson, íbúi við Hásæti, segir að lögreglan hafi fært manninn út úr húsinu og 4-5 lögreglubílar hafi verið á staðnum. „Þeir fóru að húsinu á tveimur bílum og voru svolitla stund fyrir utan og fóru síðan inn og komu svo með hann út í bíl, þeir eru allir farnir hérna og þetta er allt orðið rólegt núna,“ segir Hafsteinn. „Hann kom hérna í haust í sláturtíðinni og það hefur ekkert ónæði verið af honum. Ég frétti það frá lögreglunni hérna að hann hefði sjálfur hringt í þá og sagt vera með byssu,“ segir Hafsteinn. Stefán Vagn segir að lögreglan hafi náð sambandi við manninn mjög fljótlega en hann hafi meðal annars hringt beint í lögregluna á Sauðárkróki. Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra hafi séð um samskipti við manninn að stóru leyti. Þeir hafi verið í sambandi við hann allan tímann með hléum. Maðurinn var búinn að hóta að beita skotvopninu, meðal annars gegn lögreglunni.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Sjá meira