Innlent

Braut rúðu með berum höndum - fluttur á slysadeild með skurði

Rúmlega tvítugur karlmaður var handtekinn í Teigahverfi tuttugu mínútur í eitt í nótt eftir að lögreglan fékk tilkynningu um þar hefðu brotist út átök.

Maðurinn hafði brotið rúðu í bíl með berum höndum en nokkur fjöldi manna var á staðnum. Ekki er vitað hvað manninum gekk til en hann var fluttur á slysadeild með skurði á höndum.

Þegar hann var færður í fangageymslu kom í ljós að hann var með fíkniefni í fórum sínum.

Þá gekk þrítugur karlmaður berserksgang í Ingólfsstræti í miðborginni um klukkan þrjú í nótt. Maðurinn sparkaði í kyrrstæði bíla og skemmdi. Hann var handtekinn og fékk að gista fangageymslur.

Á sjötta tímanum í morgun tilkynnti íbúí í Hlíðunum að búið væri að brjóta stóra rúðu í íbúð hans. Gerandinn var á bak og burt þegar lögreglan kom á staðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×