Harpa tilnefnd til tvennra verðlauna Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 9. ágúst 2013 15:56 Harpa hefur verið tilnefnd til fjölmargra verðlauna. „
Við erum agalega montin,“ segir Helga Thors, markaðsstjóri Hörpu, tónlistar og ráðstefnuhúss en Harpa hefur verið tilnefnd til tveggja verðalauna, LEAF verðlaunanna og WAN verðlaunanna. „Þetta er bara enn ein fjöðrin í hnappagat Hörpu. Við erum búin að fá svo margar tilnefningar og mörg verðlaun, en í vor hlaut Harpa evrópsku arkítektúraverðlaunin Mies van der Rohe sem eru stærstu arkitektarverðalunin .“ „Arkitektastofan Henning Larsen og Batteríið Arkitektar sáu um hönnun fyrir húsið og Ólafur Elíasson er listamaðurinn af glerhjúpnum yfir Hörpu.“ „Harpa var tilnefnd til LEAF verðlaunanna, The Emirates Glass LEAF Awards í flokknum opinberar bygginar ársins, menning. LEAF eru alþjóðleg samtök arkitekta sem starfa í Evrópu og voru stofnuð árið 2001. Samtökin veita verðlaun einu sinni á hverju ári þeim arkitektum sem hafa nýjungar og framsækni að leiðarljósi í hönnun sinni. Verðlaunaðar eru byggingar þar sem hönnunin markar þáttaskil í byggingarlist komandi kynslóða.“ Fjórar aðrar opinberar byggingar eru tilnefndar í þessum flokki. Hinar byggingarnar eru sjávarsafnið Blue Planet Aquarium í Kaupmannahöfn, risagarðhýsin Gardens by the bay í Singapore, margmiðlunarsafnið Médiathèque Mont de Marsan í París og kirkjugarðurinn Andrea Dragoni Architetto í Gabbio á Ítalíu. Verðlaunaathöfnin fer fram í London 20. september. Fjórar byggingar af þessum fimm tilnefndu eiga það sameiginlegt að hönnun þeirra er að miklu leyti unnin úr gleri. Hin verðlaunin sem Harpa er tilnefnd til eru WAN verðlaunin, Performing Spaces Awards. WAN verðlaunin eru í eigu vefritsins WorldArcitectureNews.com og eru mjög umsvifamikil alþjóðleg arkitektaverðlaun. Harpa er þar tilnefnd í flokknum Framhlið og ásýnd ársins 2013. „Harpa er þar ásamt 40 öðrum byggingum og það eru 300 dómarar sem gefa atkvæði sín í þeirri kosningu.“
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira