Fögnum hinsegin flóttafólki Anna Pála Sverrisdóttir og Hilmar Magnússon skrifar 6. nóvember 2013 06:00 Mannréttindasamtök í Íran telja að yfir 4.000 hommar og lesbíur hafi verið líflátin þar í landi frá því í klerkabyltingunni árið 1979. Sem sagt tekin af lífi af hinu opinbera fyrir að vera samkynhneigð. Lögbundnar dauðarefsingar tíðkast á fleiri stöðum í heiminum þótt ríkin séu sem betur fer fá. Í fjölda annarra ríkja, þar með talið Afganistan, er það hins vegar refsivert með lögum að vera hinsegin og getur varðað þungum refsingum. En hinsegin fólk er ekki eingöngu beitt kúgun af hinu opinbera, líkt og í dæmunum að framan. Hinsegin fólk víða um heim verður nefnilega daglega fyrir ofbeldi ýmissa hópa og einstaklinga. Þótt ofbeldið sé ekki á vegum ríkisins getur ríkisvaldið ýtt undir það með því til dæmis að taka ekki á þeim sem meiða og myrða – og þannig veitt þeim skotleyfi. Af þessum sökum þarf engan að undra að margt hinsegin fólk í heiminum sé á flótta. Það á einfaldlega ekki aðra kosti ef það vill halda lífi og limum. Um málefni hinsegin flóttafólks var ýmislegt rætt á Evrópuráðstefnu hinsegin fólks sem undirrituð sóttu í Króatíu á dögunum. Fram kom að hinsegin fólk sem leitar hælis í öðrum ríkjum má iðulega sæta ömurlegri og niðurlægjandi meðferð þar sem það leitar hælis og er jafnvel svipt frelsi sínu. Ítalía er eitt þeirra ríkja sem standa illa að málum, en þaðan kom nígeríski hælisleitandinn Martin til Íslands. Mál hans er nú til meðferðar eftir að hafa réttilega verið tekið upp á ný í innanríkisráðuneytinu. Frétt Sjónvarpsins frá 29. október sl. sýnir að Martin hefur vegna illrar meðferðar á hinsegin fólki í Nígeríu ríkar ástæður til að sækja um hæli hérlendis. Hér í upphafi var minnst á Íran og Afganistan en það er einmitt þaðan sem íslensk stjórnvöld hafa nú ákveðið að taka á móti nokkrum flóttamönnum til landsins. Ástæðulaust er að útskýra í þaula hvers vegna við erum í sjöunda himni yfir þeirri ákvörðun. Þörfin er svo augljós. Um yrði að ræða fólk sem stundum er kallað kvótaflóttamenn, þ.e. ekki hælisleitendur heldur flóttafólk sem er valið til Íslands í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Aðstæður hinsegin fólks eru ekki fullkomnar hérlendis, en okkar samfélagi hefur þó fleygt hratt fram á undanförnum árum og af því mega Íslendingar vera stoltir. Við höfum því aðstæður til að geta boðið þeim skjól sem svo sárlega þurfa á að halda. Tillaga Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra um þessa ákvörðun var kærkomin nýbreytni og afar ánægjulegt að ríkisstjórnin hafi samþykkt hana. Fyrsta kastið verður ekki um marga einstaklinga að ræða en þeir verða vonandi fleiri. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 17.05.2025 Halldór Lélegir íslenskir læknar...eru ekki til! Steinunn Þórðardóttir Skoðun Þjóðin sem selur sjálfri sér: Vangaveltur um sölu Íslandsbanka Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun Friðun Grafarvogs Stefán Jón Hafstein Skoðun Söngur Ísraels og RÚV Ingólfur Gíslason. Skoðun Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun Við munum aldrei fela okkur aftur Kári Garðarsson Skoðun NÓG ER NÓG – Heilbrigðiskerfið er í neyðarástandi Ásthildur Kristín Björnsdóttir Skoðun Valkyrjurnar verða að losa okkur við Rapyd Björn B. Björnsson Skoðun Er Kópavogsbær vel rekinn? Bergljót Kristinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lélegir íslenskir læknar...eru ekki til! Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Þjóðin sem selur sjálfri sér: Vangaveltur um sölu Íslandsbanka Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Hagsmunir heildarinnar - Þriðji kafli: Skálmöld Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Valkyrjurnar verða að losa okkur við Rapyd Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Söngur Ísraels og RÚV Ingólfur Gíslason. skrifar Skoðun Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson skrifar Skoðun Uppiskroppa með umræðuefni í málþófi? Talið um Gaza! Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Kærleikurinn pikkaði í mig Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gigt er ekki bara sjúkdómur fullorðinna – Gigtarfélagið heldur opið hús til að fræða og styðja alla aldurshópa Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Friðun Grafarvogs Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Torfærur, hossur og hristingar! Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar Skoðun NÓG ER NÓG – Heilbrigðiskerfið er í neyðarástandi Ásthildur Kristín Björnsdóttir skrifar Skoðun Við munum aldrei fela okkur aftur Kári Garðarsson skrifar Skoðun Er Kópavogsbær vel rekinn? Bergljót Kristinsdóttir skrifar Skoðun Oft er forræðishyggja hjá fjölskyldum og á heimilum fatlaðs fólks Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Um sjónarhorn og sannleika Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Lýðræðið er farið – er of seint að snúa við? Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Er gagnlegt að kunna að forrita á tímum gervigreindar? Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Málþóf og/eða lýðræði? Elín Íris Fanndal skrifar Skoðun Umdeildasti fríverslunarsamningur sögunnar? Arnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Ísafjarðarbær í Bestu deild Sigríður Júlía Brynleifsdóttir,Gylfi Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð í beinni Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Allt þetta máttu eiga ef þú tilbiður mig Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Atvinnufrelsi! Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að mása eða fara í golf Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Leiðréttum kerfisbundið misrétti Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Leikjanámskeið fyrir fullorðna við Austurvöll Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sparnaðarráð fyrir ferðalagið Svandís Edda Jónudóttir skrifar Skoðun Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon skrifar Sjá meira
Mannréttindasamtök í Íran telja að yfir 4.000 hommar og lesbíur hafi verið líflátin þar í landi frá því í klerkabyltingunni árið 1979. Sem sagt tekin af lífi af hinu opinbera fyrir að vera samkynhneigð. Lögbundnar dauðarefsingar tíðkast á fleiri stöðum í heiminum þótt ríkin séu sem betur fer fá. Í fjölda annarra ríkja, þar með talið Afganistan, er það hins vegar refsivert með lögum að vera hinsegin og getur varðað þungum refsingum. En hinsegin fólk er ekki eingöngu beitt kúgun af hinu opinbera, líkt og í dæmunum að framan. Hinsegin fólk víða um heim verður nefnilega daglega fyrir ofbeldi ýmissa hópa og einstaklinga. Þótt ofbeldið sé ekki á vegum ríkisins getur ríkisvaldið ýtt undir það með því til dæmis að taka ekki á þeim sem meiða og myrða – og þannig veitt þeim skotleyfi. Af þessum sökum þarf engan að undra að margt hinsegin fólk í heiminum sé á flótta. Það á einfaldlega ekki aðra kosti ef það vill halda lífi og limum. Um málefni hinsegin flóttafólks var ýmislegt rætt á Evrópuráðstefnu hinsegin fólks sem undirrituð sóttu í Króatíu á dögunum. Fram kom að hinsegin fólk sem leitar hælis í öðrum ríkjum má iðulega sæta ömurlegri og niðurlægjandi meðferð þar sem það leitar hælis og er jafnvel svipt frelsi sínu. Ítalía er eitt þeirra ríkja sem standa illa að málum, en þaðan kom nígeríski hælisleitandinn Martin til Íslands. Mál hans er nú til meðferðar eftir að hafa réttilega verið tekið upp á ný í innanríkisráðuneytinu. Frétt Sjónvarpsins frá 29. október sl. sýnir að Martin hefur vegna illrar meðferðar á hinsegin fólki í Nígeríu ríkar ástæður til að sækja um hæli hérlendis. Hér í upphafi var minnst á Íran og Afganistan en það er einmitt þaðan sem íslensk stjórnvöld hafa nú ákveðið að taka á móti nokkrum flóttamönnum til landsins. Ástæðulaust er að útskýra í þaula hvers vegna við erum í sjöunda himni yfir þeirri ákvörðun. Þörfin er svo augljós. Um yrði að ræða fólk sem stundum er kallað kvótaflóttamenn, þ.e. ekki hælisleitendur heldur flóttafólk sem er valið til Íslands í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Aðstæður hinsegin fólks eru ekki fullkomnar hérlendis, en okkar samfélagi hefur þó fleygt hratt fram á undanförnum árum og af því mega Íslendingar vera stoltir. Við höfum því aðstæður til að geta boðið þeim skjól sem svo sárlega þurfa á að halda. Tillaga Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra um þessa ákvörðun var kærkomin nýbreytni og afar ánægjulegt að ríkisstjórnin hafi samþykkt hana. Fyrsta kastið verður ekki um marga einstaklinga að ræða en þeir verða vonandi fleiri.
Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun
Skoðun Þjóðin sem selur sjálfri sér: Vangaveltur um sölu Íslandsbanka Guðjón Heiðar Pálsson skrifar
Skoðun Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson skrifar
Skoðun Gigt er ekki bara sjúkdómur fullorðinna – Gigtarfélagið heldur opið hús til að fræða og styðja alla aldurshópa Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Oft er forræðishyggja hjá fjölskyldum og á heimilum fatlaðs fólks Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar
Skoðun Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon skrifar
Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun