Innlent

Hvetja íslenska þingmenn til að hafna vernd fyrir transfólk

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Dunja Mijatovic hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu kveður  lagafrumvarp innanríkisráðherra á Íslandi brjóta gegn tjáningarfrelsi og hvetur alþingismenn til að hafna því.
Dunja Mijatovic hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu kveður lagafrumvarp innanríkisráðherra á Íslandi brjóta gegn tjáningarfrelsi og hvetur alþingismenn til að hafna því. Mynd/Öse
„Við teljum þessar breytingar vega að tjáningarfrelsi og þrátt fyrir að þeim sé ætlað að vernda minnihlutahópa á aldrei að hefta tjáningarfrelsi,“ segir Gunnar Vrang, talsmaður fulltrúa Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, varðandi frelsi fjölmiðla, í samtali við Fréttablaðið.

Fulltrúi ÖSE, Dunja Mijatovic, segir í yfirlýsingu að embættið telji nýtt lagafrumvarp innanríkisráðherra brjóta gegn tjáningarfrelsi og hvetur alþingismenn til að hafna því.

Frumvarpið er breytingartillaga á hegningarlögum þar sem gert er refsivert að hæðast að transfólki en áður var því aðeins beint að trúarbrögðum og kynhneigð.

Í athugasemdum við frumvarpið segir að markmiðið sé að veita einstaklingum með kynáttunarvanda refsivernd til samræmis við aðra hópa sem eru taldir þurfa á sérstakri vernd að halda. Að auki er frumvarpið samið vegna fyrirhugaðrar fullgildingar á viðbótarbókun við samning Evrópuráðsins um tölvubrot.

„Það er hlutverk okkar að bregðast við hvers kyns lagabreytingum hjá ríkjum innan ÖSE sem ógna tjáningarfrelsi borgaranna,“ segir Gunnar aðspurður hvort embættið geri bara athugasemdir við það að transfólki sé bætt við ákvæðið eða hvort hið sama eigi við um lagaákvæðið sem fyrir sé. Þannig geti embættið ekki lagst gegn fyrirliggjandi ákvæði, en geri athugasemdir við breytingartillöguna.

Í yfirlýsingunni segir að frelsi til að tjá skoðanir sínar séu grundvallarmannréttindi sem þarf að vernda og megi aðeins skerða ef um er að ræða viljandi og hættulegan áróður fyrir ofbeldi. Jafnvel þótt við teljum ummæli móðgandi, andstyggileg, meiðandi eða ögrandi verði slíkar skoðanir að fá að heyrast.

Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Samtakanna "78.
Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Samtakanna "78, segir að evrópsk lagahefð sem Ísland er hluti af, sérstaklega hvað varðar mannréttindi, byggi á að hatursfull umræða sem beinist að hópum grafi undan lýðræði.

„Það er sérstaklega slæmt að transfólk sem hópur dragist inn í þessa umræðu. Þótt þeir sem hafa tjáð sig um málið hafi ekkert á móti transfólki þá er raunin sú að það verður fyrir miklum fordómum í okkar samfélagi í sínu daglega lífi og þarf síst minna á réttarvernd gegn hatursorðræðu að halda en aðrir hópar, sem taldir eru upp í ákvæðinu sem fyrir er,“ segir Anna Pála Sverrisdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×