Segir Torfnesvöll langversta völlinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. september 2013 13:30 Mynd/Daníel
David James, markvörður ÍBV, segir ekki á dagskránni að hætta knattspyrnuiðkun. „Á meðan ég get sinnt bæði vinnunni og fótboltanum og það kemur niður á hvorugu mun ég halda áfram,“ segir David James í viðtali við Independant. James er í starfi sem sparkspekingur hjá BT sjónvarpsstöðinni auk þess að verja mark Eyjamanna. Landsliðsmarkvörðurinn fyrrverandi hefur vakið athygli fyrir framgöngu sína með ÍBV í Pepsi-deildinni í sumar bæði hér heima og erlendis. James, sem spilaði sinn 1000. leik á dögunum og er 43 ára, fer á kostum í viðtalinu. Þar kemur meðal annars fram að hann hafi misst af ágóðaleik Rio Ferdinand þar sem hann var veðurtepptur. Þá minnist hann skelfilegrar frammistöðu eins liðsfélaga síns hjá ÍBV í leik í sumar. James segist hafa sagt við Hermann Hreiðarsson, þjálfara ÍBV, að hann vildi ekki sjá leikmanninn aftur á æfingum liðsins. „Svo sá ég hann í ræktinni daginn eftir,“ segir James. Hann fékk þá að heyra að umræddur leikmaður hefði verið nýkominn af 14 tíma vakt þegar hann mætti í leikinn. Þá rifjar James upp æfingu fyrr í sumar þar sem leikmenn liðsins settu upp skilti í stað þess að spila fótbolta. „Hermann sagði mér að koma mér að verki,“ segir James. Einn eftirminnilegasti leikur hans á tímabilinu var bikarleikur BÍ/Bolungarvíkur og ÍBV fyrir vestan. „Við lentum á flugvelli í dal á Vestfjörðum. Fegurðin var ólýsanleg. Völlurinn var hins vegar, með örlitlu grasi, smá sandi og heilmikilli möl. Hann er án nokkurs vafa sá versti sem ég hef spilað á á ferlinum. Og ég hef spilað fótbolta áratugum saman.“Viðtalið við James má sjá hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Albert svaraði eftir að hafa verið sakaður um hugleysi Fótbolti Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Íslenski boltinn „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Enski boltinn Dæmd í fjögurra ára fangelsi Fótbolti „Hortugasta klapp sem ég hef séð“ Körfubolti Þriggja ára strákur setti heimsmet í skák Sport „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Körfubolti Búist við að Salah verði hent úr hóp Enski boltinn Langhlauparar í meiri hættu að fá krabbamein Sport Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ Enski boltinn Fleiri fréttir Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina KSÍ skiptir um mótakerfi og smíðar nýjan vef Damir Muminovic til Grindavíkur Vestramenn sækja son sinn suður Einn fljótasti leikmaður Bestu deildarinnar orðinn Þróttari Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Atli kveður KR og flytur norður Theodór Elmar hættur hjá KR Hrannar Bogi inn eftir brotthvarf Caulkers Segir ónefndan aðila hafa unnið gegn sér hjá Breiðabliki Alex Freyr frá Fram í Njarðvík Víkingar fá ungan og spennandi kantmann Nýliðarnir fá níutíu leikja mann Jónatan og formaður hissa á tali um KR-löngun Sjá meira