Innlent

Áheit fyrir Reykjavíkurmaraþonið aukast um 80%

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Milljónir hafa safnar í áheit fyrir Reykjavíkurmaraþonið í ár.
Milljónir hafa safnar í áheit fyrir Reykjavíkurmaraþonið í ár. mynd/365
„Það er 80% aukning á áheitum núna miðað við sama tíma í fyrra,“ segir Pétur Jóhann Sigfússon um söfnun áheita fyrir Reykjavíkurmaraþonið í ár. Sjálfur hefur Pétur safnað 12 þúsund krónum en markmið hans var að safna að minnsta kosti 700 þúsund krónum til styrktar Umhyggju, sem er styrktarfélag langveikra barna. „Ég hef ekkert um þetta að segja,“ segir Pétur þegar hann er spurður út í það hversu lítið hann hefur safnað en hann er andlit hlaupsins í ár.. „En aðalatriðið er ekki hversu miklu ég safna, heldur er meginmarkmiðið að vekja athygli á málstaðnum.“

„Mig langar að styðja við það frábæra starf sem bæði foreldrar og fagfólk inna af hendi svo að langveik börn geti átt góða æsku og horft björtum augum til framtíðar. Það er mikilvægt fyrir mig sem uppistandara og gamanleikara að fá sem flesta til að brosa,“ er meðal þess sem fram kemur í auglýsingu Péturs á heimasíðu Reykjavíkurmaraþonsins.

Alls hafa safnast 13.247.992 krónur þegar þessi frétt er skrifuð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×