Jafn mikilvægt að ræða mannréttindamál og að gera við holóttar götur Heimir Már Pétursson skrifar 2. ágúst 2013 19:31 Jón Gnarr segir mikilvægt að fólk í hans stöðu vinni að mannréttindamálum allra.
Jón Gnarr borgarstjóri sagði í ræðu á mannréttindaráðstefnu í tengslum við Hinsegin leikana, eða Out Games, í Andverpen í Belgíu í gær að það ætti að vera verkefni stjórnmálamanna almennt að vinna að virðingu fyrir mannréttindum allra, líka hinsegin fólks. Borgarstjóri sagðist m.a hafa skrifað opið bréf til páfans vegna réttinda hinsegin fólks og hann vildi slíta vinasambandi Reykjavíkur við Moskvu vegna bágrar stöðu réttinda hinsegin fólks þar. Það væri ekki síður mikilvægt verkefni borgarstjóra að ræða þessi mál en að sjá til þess að gert væri við holóttar götur. - En hvað finnst honum um þá gagnrýni að hann tali of mikið um réttindi hinsegin fólks? „Já, mér finnst það rangt. Mér finnst mannréttindi vera eitt mikilvægasta málefni í heiminum í dag. Ef við ætlum að þroska þennan heim til betri vegar þá er það eitthvað sem við þurfum virkilega að laga, þannig að við getum staðið sem heimur undir mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna um það að allar manneskjur skuli vera jafnar og hafa jöfn tækifæri til öryggis og hamingju,“ segir borgarstjóri. Hann segir mikilvægt að fólk í hans stöðu vinni að mannréttindamálum allra. Honum finnist að stjórnmálamenn almennt séu að verða opnari fyrir að ræða þessi mál en áður. Borgarstjóri eigi að vera einhvers konar talsmaður íbúanna og vilja þeirra. „Ég skynja það mjög sterkt að allt sem ég hef gert á þessu sviði hefur hlotið mjög góðan hljómgrunn hjá borgarbúum. Þetta er eitthvað sem ég held að flestir Íslendingar vilji standa fyrir; það er friður, mannréttindi og mannvirðing. Ég held að það sé mjög ríkt í okkur sem þjóð,“ segir Jón Gnarr. Og borgarstjórinn er búinn að ákveða hvernig hann verður klæddur í gleðigöngu Hinsegin daga eftir rúma viku og segir að búningur hans muni koma á óvart. „Já, það mun koma töluvert á óvart og ég hlakka mikið til eins og alltaf. Þetta er viðburður sem ég byrja að hlakka til á vorin,“ segir borgarstjóri sem nú er staddur í Antverpen. Hlusta má á viðtal Heimis Más við Jón Gnarr í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.Það var fiðringur í Jóni Gnarr fyrir Gleðigöngunni þegar Bylgjan sló á þráðinn til hans í dag.
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Sjá meira