Biðja Cameron að hætta ekki ESB-aðild 10. janúar 2013 04:00 Nick Clegg aðstoðarforsætisráðherra, David Cameron forsætisráðherra og George Osborne fjármálaáðherra í fyrirspurnartíma forsætisráðherra í breska þinginu í gær. Fréttablaðið/AP
Milljarðar punda af skatttekjum gætu glatast færi svo að flosnaði upp úr Evrópusambandsaðild Breta. Viðskiptajöfrar biðla til forsætisráðherra landsins að stíga varlega til jarðar í samskiptum við ESB. Cameron er andsnúinn meiri völdum ESB. Tíu framámenn í bresku viðskiptalífi vara David Cameron, forsætisráðherra landsins, við því að hann leggi efnahagslíf Breta í hættu flosni upp úr Evrópusambandsaðild vegna endurskoðunar á aðildarsamningi. Í bréfi sem birt var í Financial Times í vikunni andmæla Richard Branson hjá Virgin Group, Chris Gibson-Smith, forstjóri Lundúnakauphallarinnar, Martin Sorrell, forstjóri WPP, og sjö aðrir breskir viðskiptajöfrar áætlun Camerons um að endursemja um aðild Bretlands að Evrópusambandinu og leggja nýjan samning í þjóðaratkvæðagreiðslu. Viðskiptajöfrarnir segja að slík áætlun gæti misheppnast með þeim afleiðingum að Bretland hrektist úr ESB sem yrði skaðlegt breskum fyrirtækjum. Aðildin að ESB hefur veitt breskum fyrirtækjum aðgang að gríðarstórum innri markaði Evrópuríkja, um leið og landið hefur hönd í bagga með því hvaða stefna verður ofan á í ríkjasambandinu og á fjármálamörkuðum þess. Þá hefur Bretland einnig notið góðs af sjóðum ESB til uppbyggingar innviða ríkja, svo sem við lagningu háhraðaneta. „Milljarðar punda af skatttekjum gætu glatast,“ segja viðskiptajöfrarnir. Óánægja og vantraust í garð ESB hefur hins vegar farið vaxandi í Bretlandi, sem er eitt tíu landa sambandsins sem ekki hafa tekið upp evru. Þótt viðskiptajöfrarnir hvetji í bréfi sínu til umbóta innan ESB telja þeir að alhliða endursamningi um aðild yrði nær örugglega hafnað. „Að kalla eftir slíku í ríkjandi kringumstæðum myndi hætta ESB-aðild okkar og búa til skaðlega óvissu fyrir breskt viðskiptalíf, sem er það síðasta sem forsætisráðherrann ætti að vilja gera,“ segja þeir. Efnahagsþrengingar hafa knúið ESB-löndin sautján sem nota evruna til að bindast sterkari böndum og það gæti dregið úr áhrifamætti ríkja, sem eins og Bretar standa utan evrusamstarfsins. Þótt Cameron styðji áframhaldandi aðild að ESB og áframhaldandi áhrifum Bretlands innan sambandsins, er hann um leið andsnúinn fyrirætlunum ríkja á borð við Frakkland og Þýskaland um að auka áhrif og völd framkvæmdastjórnar ESB yfir fjármálamörkuðum og lagaumhverfi í öllum löndum sambandsins. Um miðjan þennan mánuð upplýsir Cameron um afstöðu sína og markmið í viðræðum við ESB. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Aron Can heill á húfi Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Erlent Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Innlent Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Innlent Lögreglan leitar tveggja manna Innlent Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Innlent Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Innlent Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Innlent „Sorglega lítið eftir“ þegar sundkappinn var stöðvaður Innlent Fleiri fréttir Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Norskur maður ákærður fyrir njósnir í þágu Rússa og Írana Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð Setjast enn og aftur við samningaborðið en væntingar eru litlar Biden hraunar yfir Clooney: „Hann má fokka sér“ Segjast hafa fengið rangar líkamsleifar Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Hundrað hjálparsamtök segja hungursneyð breiðast út um Gasa-svæðið Sjá meira