Einn þekktasti vísindamaður heims með erindi í HÍ Stefán Árni Pálsson skrifar 27. nóvember 2013 09:45 Dr. Dennis Meadows.
Dr. Dennis Meadows, einn þekktasti vísindamaður heims á sviði sjálfbærrar þróunar, flytur erindi í Háskóla Íslands í dag en fyrirlesturinn er á vegum Háskóla Íslands og Stofnunar Sæmundar fróða. Vísindamaðurinn fer með fyrirlesturinn „Endurskoðun hugtaksins sjálfbær þróun“ í hátíðarsal aðalbyggingar Háskóla Íslands en hann hefst kl. 13.30 og stendur yfir í eina klukkustund. Dr. Dennis Meadows er meðal þekktustu fræðimanna heims á sviði sjálfbærra þróunar. Hann er prófessor í kerfisstjórnun og fyrrverandi forstöðumaður stofnunar um stefnumótun og félagsvísindi við Háskólann í New Hampshire. Hann stýrir nú rannsóknastofu um gagnvirkt nám. Dr. Meadows er þekktastur fyrir að vera meðhöfundur skýrslunnar „Takmörk vaxtar“ (Limits to Growth) frá árinu 1972. Í skýrslunni nýttu höfundar svokölluð kvik kerfislíkön til að sýna afleiðingar samspils fólksfjölgunar og takmarkaðra náttúruauðlinda. Tilgangurinn var ekki að spá ákveðið um framtíðina heldur að kanna samspil veldisvaxtar og takmarkaðra auðlinda. Nú, 40 árum eftir að skýrslan kom út, reynist líkanið hafa staðist og þau vandamál sem mannkynið stendur frammi fyrir eru of margir jarðarbúar, eyðilegging vistkerfa, mengun og þverrandi náttúruauðlindir. Dr. Meadows hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir framlag sitt til vísinda, þar á meðal Japansverðlaunin 2009 en þau eru veitt fyrir frumleg og framúrskarandi afrek í vísindum og tækni sem stuðla að farsæld mannkynsins. Hann hefur stýrt rannsóknastofnunum við MIT, Dartmouth College og University of New Hampshire, setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og verið ráðgjafi ríkisstjórna í Bandaríkjunum og víðar.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Sjá meira