Innlent

Börðu mann sem stóð þá að innbroti

Gissur Sigurðsson skrifar
Sauma þurfti 13 spor til að loka skurðum á höfði hans, auk þess sem hann er rifbeinsbrotinn.
Sauma þurfti 13 spor til að loka skurðum á höfði hans, auk þess sem hann er rifbeinsbrotinn. mynd úr safni
Tveir erlendir karlmenn, sem eru búsettir hér á landi, voru handteknir á Suðurlandi í nótt eftir fólskulega árás á mann sem stóð þá að innbroti í sumarbústað. Lögreglan á Selfossi íhugar að krefjast gæsluvarðhalds yfir þeim en að minnsta kosti annar þeirra á langan afbrotaferil að baki hér á landi.

Það var um níu leytið í gærkvöldi sem eigandi sumarbústaðar Reykjaskógi, skammt frá Úthlíð í Biskukpstungum, sá  grunsamlegar mannaferðir í gegnum eftirlitskerfi í bústaðnum. Hann býr í Reykjavík og hringdi því í kunninga sinn í uppsveitum og bað hann að athuga hvað væri á seyði. Þegar hann kom á vettvang voru mennirnir búnir að brjóta upp útidyrnar. Maðurinn sagði að nú væri best að bíða eftir lögreglunni en þá réðust þeir á hann með barsmíðum og héldu svo á brott.

Sauma þurfti 13 spor til að loka skurðum á höfði hans, auk þess sem hann er rifbeinsbrotinn.

Maðurinn hringdi í lögregluna strax eftir árásina og gaf upp númer og lýsingu á bílnum sem þeir voru á. Tveir lögreglumenn frá Selfossi voru staddir á bíl á Flúðum, tveir til viðbótar voru ræstir út á Selfossi og óskað var eftir að sérsveitarmenn frá Ríkislögreglustjóra sendu þriðja bílinn til að umkringja mennina. Það tókst og voru mennirnir handteknir og vistaðir í fangageymslum á Selfossi. Þeir verða yfirheyrðir í dag vegna alvarlegrar líkamsárásar, akstur undir áhrifum fíkniefna og gruns um innbrot í nokkra sumarbústaði í uppsveitum Árnessýslu undanfarnar tvær vikur.

Annar tók meðal annars þátt í að stela nýverið verðmætum úr versluninni við Geysi upp á tvær milljónir króna, og töluverðum verðmætum úr Hagkaupum og Tölvulistanum á Selfossi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×