Tæplega þrettán þúsund í Háskóla Íslands Valur Grettisson skrifar 28. ágúst 2013 10:00 „Þetta er mjög svipuð skráning og við sáum árið 2011,“ segir Jón Atli Benediktsson, aðstoðarrektor vísinda og kennslu hjá Háskóla Íslands.
Tæplega þrettán þúsund höfðu greitt skrásetningargjald í Háskóla Íslands þann 23. ágúst síðastliðinn. Það er svipaður fjöldi og fyrir tveimur árum, en þá var fjöldi nemenda í sögulegu hámarki. Þá má búast við að fjöldi nýskráðra aukist enn frekar á næstu dögum en nemendur hafa frest til 10. september næstkomandi til að endurskoða skráningu sína. „Þetta er mjög svipuð skráning og við sáum árið 2011,“ segir Jón Atli Benediktsson, aðstoðarrektor vísinda og kennslu hjá Háskóla Íslands. Stærstu deildir háskólans eru sem fyrr lögfræði, viðskiptafræði og sálfræði. Viðskiptafræðin er þó fjölmennust. „En það hefur orðið veruleg fjölgun í tölvunar- og verkfræði,“ segir Jón Atli. Alls hafa 196 nýnemar staðfest skólavist í tölvunarfræði í haust og hefur fjöldi nýnema þrefaldast á fjórum árum. Í hugbúnaðarverkfræði hafa 68 nýnemar staðfest skólavist og er þar um nær fjórföldun nemenda að ræða. Eins stefnir í að nýnemum í mannfræði fjölgi um 30% milli ára og verða þeir nærri 100 á komandi skólaári. Spurður hvað skýri þessa miklu fjölgun í tölvunar- og verkfræðina svarar Jón Atli því til að nemendur sjái einfaldlega tækifæri í þessu námi. „Svo eru auðvitað gæði námsins mikil,“ bætir Jón Atli við. Þá vekur athygli að töluverð fjölgun er í starfs- og viðbótarnámi við háskólann, en um 590 hefja nám þar í haust samanborið við tæplega 500 í fyrrahaust. Jón Atli segir skýringuna á þessari aukningu meðal annars að þarna séu komnar nýjar greinar, meðal annars styttra nám, sem fólk sjái tækifæri í og séu hagnýt. „Annars hefur framhaldsnám aukist verulega,“ bætir Jón Atli við en heildarfjöldi framhaldsnema við Háskóla Íslands verður vel á fjórða þúsund, sem er svipað og á síðasta ári. Tæplega þrjú þúsund og fimm hundruð nýnemar munu hefja nám við háskólann næsta haust sé tekið mið af upplýsingum frá Háskóla Íslands, en þar er miðað við skráningu nemanda í skólann 23. ágúst síðastliðinn.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira