Bókum stolið af Hlemmi Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 28. ágúst 2013 21:43 Bóksafninu á Hlemmi var stolið á menningarnótt. Þær Ágústa Sveinsdóttir, Ólöf Rut Stefánsdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir höfðu séð um að safna bókunum saman. mynd/365
Bókum í tímabundnu bókasafni á Hlemmi var stolið á Menningarnótt. Bókunum hafði verið komið fyrir á Hlemmi til þess að stytta gestum bið og gera Hlemm notalegri. Þetta var liður í verkefninu Torg í biðstöðu á vegum Reykjavíkurborgar. Það eru þrjár ungar konur, Ólöf Rut Stefánsdóttir vöruhönnuður og listaháskólanemarnir Ágústa Sveinsdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir sem hafa haft það verkefni í sumar að vinna að endurbótum á Hlemmi. „Við vorum sjálfar búnar að safna fullt af bókum sem við komum fyrir á Hlemmi á föstudeginum fyrir Menningarnótt. Við vorum bjartsýnar á að verkefnið gengi vel og það kom viss bugun yfir okkur þegar við mættum á Hlemm eftir helgina,“ segir Ólöf Rut. Ólöf Rut segist vonast til þess að fólk skili bókunum aftur eða komi með aðrar nýjar í staðinn. „Við hvetjum líka alla til þess að koma með gamlar bækur og hjálpa til við að byggja upp þetta sjálfbæra bókasafn. Hugmyndin er að fólk geti tekið bækur og skili þeim svo aftur eða komi með aðrar í staðinn. Þannig að á Hlemmi verði til einskonar skiptibókasafn.“ Ólöf segir þetta vera tilraunaverkefni sem væri gaman að sjá ganga eftir, það sé alltaf notalegt að vera í nærveru bóka og hugmyndin er að gera Hlemm að notalegri stað til að vera á, en hann hefur haft frekar neikvæða ímynd. „Við skiljum við verkefnið á föstudaginn og þá verður spennandi að sjá hvort að þetta dafni áfram. Á föstudaginn verðum við með uppákomur á Hlemmi ef fólk vill kíkja við, tónlistaratriði og gestabók þar sem fólk getur skrásett ferðir sínar um Hlemm,“ segir Ólöf Rut.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira