Bestu kynlífslýsingar ársins 23. febrúar 2013 19:09
Rauða hrafnsfjöðrin, verðlaun fyrir forvitnilegustu kynlífslýsingu ársins, var veitt í sjöunda sinn á aðalfundi lestarafélagsins Krumma sem haldinn var á föstudagskvöld. Auður Ava Ólafsdóttir hlaut verðlaunin í þetta skiptið. Fjögur voru tilnefnd til verðlaunanna. Auður Ava var tilnefnd fyrir skáldsögu sína Undantekninguna, Bragi Ólafsson fyrir Fjarveruna, Eiríkur Örn Norðdahl fyrir Illsku, Jóna Guðmundsdóttir fyrir limru í í Limrubókinni og Heiðrún Ólafsdóttir fyrir ljóð í Á milli okkar allt. Í umsögn dómnefnd verðlaunanna kom fram að kynlífslýsingar hafi verið mun fleiri í skáldverkum síðasta árs, en nánast allar hafi skort skáldlegt innsæi. Tilnefningarnar fjórar má sjá hér að neðan. Auður Ava Ólafsdóttir - Undantekningin:- Þarna?- Nei, hérna.- Hérna?- Já, þarna.Þá verður mér litið á skútumyndina yfir rúminu og tek eftir manni sem stendur einsamall í flæðarmálinu undir skýjaflóka og sé ekki betur en yfir höfði hans hniti agnarsmár máfur hringi. Og ég finn ruggið undir skipsskrokknum og smurolíulyktina og grjóthart stálið við beran kviðinn, hvernig kaldir stálboltarnir þrýstast inn í bert holdið. Ég loka augunum með saltbragðið á tungunni.Þegar því er lokið, dregur hann að sér höndina með akkerinu, leggst á koddann sín megin og horfir upp í loftið. Ég veit að hann er vakandi en ég horfi ekki á hann og hann lítur heldur ekki á mig. Heiðrún Ólafsdóttir - Á milli okkar alltKarl Blöndal afhendir Auði fjöðrina.Mynd/AðsendÍ nóttskreið uppítil mínlítill maður með magapínu.Ég vildi að það hefði veriðstærri maðurmeð öðruvísi pínu----StrípuðÞegar allt hefur veriðrakað burtu ogekkert eftir nemaallsber nektin.Þá geturðu komið ogsleikt úr mér fýluna Bragi Ólafsson - FjarveranLíkt og Ármann hafði Markús lengi vitað af Esther, en það eru þó ekki nema nokkrir mánuðir síðan þau kynntust. Það var í Nýlistasafninu, á einhvers konar tónleikum, og síðan í samkvæmi í framhaldi af tónleikunum sem eitt af tónskáldunum það kvöld, Níels Pietur Jóhannsson, hélt í íbúð sinni á Framnesveginum.En var það svona, hugsar Ármann, sem þau höfðu setið í rólegheitum á þessum kalda miðvikudagsmorgni og hlustað á lætin í Varése í gömlu plussstólunum hans Markúsar? Eða á fútonsófanum hans? Nakin? Hvaða verk var það nákvæmlega sem Markús sagðist hafa verið að spila? Höfðu þau setið saman, þau tvö, Esther og hann, og hlustað á Varése, og var hún nakin á meðan, eða hafði hún klætt sig úr öllu eftir það - hafði ekki rúðan verið brotin rétt áðan? Er hálfsextug kona með svona þrýstin brjóst? Er hún með eitthvað í þeim?Ármanni hafði aldrei dottið í hug að jafn stinn og falleg brjóst leyndust undir víðum og litríkum kjólum hennar. Og ekki séð fyrir sér að skapahár hennar væru jafn mikil og þau voru. Hann hafði alltaf verið þeirrar skoðunar að konur ættu að leyfa skapahárum sínum að vaxa eins og þau vildu vaxa - ekki vera að snyrta þau of mikið - og það er það sem Esther virðist hafa gert: ekki snyrt þau of mikið. En hvað ætli Moniku finnist um það? Hún á eftir að nota þessa óvæntu innkomu Estherar sem dropann sem fyllir mælinn, en hvað ætli henni finnist um þetta: að snyrta sig að neðan, eða láta vera að snyrta sig að neðan? Og hvað gerir hún sjálf? Jóna Guðmundsdóttir - Limrubókin: snjöllustu, fyndnustu og furðulegustu limrurnar:Jón dóniÁstar í blossandi brímanumBorghildur hangir í símanumog ræðir við Jónþann rudda og flónsem runkar sér megnið af tímanum. Rauða hrafnsfjöðrin var fyrst veitt 2007 og þá hreppti hana Eiríkur Örn Norðdahl fyrir Eitur fyrir byrjendur. 2008 varð Elísabet Jökulsdóttir hlutskörpust fyrir Heilræði lásasmiðsins, Hermann Stefánsson hreppti verðlaunin 2009 fyrir Algleymi, 2010 fékk Steinar Bragi Rauðu hrafnsfjöðrina fyrir Himininn yfir Þingvöllum, 2011 fengu þau verðlaunin saman Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir og Magnús Þór Jónsson, Megas, fyrir Dag kvennanna - ástarsögu og Sigríður Jónsdóttir hlaut fjöðrina árið 2012 fyrir bókina Kanil.
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna Erlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Fleiri fréttir Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Sjá meira