Stöðugleiki og nýr gjaldmiðill Kolbeinn Óttarsson Proppe skrifar 28. mars 2013 00:01
Fylgi Samfylkingarinnar hefur í skoðanakönnunum verið langt undir kjörfylgi. Það er ekki góð byrjun fyrir nýjan formann, en Árni Páll Árnason tók við formennsku í flokknum á landsfundi í byrjun febrúar. Árni Páll hefur staðið í ströngu við að semja um þinglok. Hann kynnti, ásamt formönnum Vinstri grænna og Bjartrar framtíðar, sáttatillögu til að leysa úr stjórnarskrármálinu. Sáttin um hana reyndist hins vegar minni en vonast hafði verið eftir. Því liggur beint við að spyrja; hvað veldur fylgistapinu og hvernig hyggst flokkurinn snúa því við? „Fylgisfallið hófst í desember og skellurinn varð í janúar – á svipuðum tíma hjá báðum ríkisstjórnarflokkunum. Við höfum kannski fengið á okkur ásýnd fjarlægari ríkisstjórnarflokks, frekar en þess félaga í daglegri lífsbaráttu launafólks sem við höfum verið hingað til. Jafnaðarmannaflokkur verður að vera tengdur við áhyggjur fólks af vinnu og velferð. Áherslur okkar taka mið af þessu. Við þurfum efnahagslegan stöðugleika til að geta byggt raunverulega velferð og velsæld. Fólk er að flýja efnahagslegt óöryggi til annarra landa, fyrirtækin að flýja efnahagslega einangrun og við finnum það svo átakanlega að raunverulega haldbærar kjarabætur verða ekki reistar á verðbólgukrónu.Sverðaglamur yfirgnæfir En er fylgistapið ekki að einhverju leyti óánægja með störf ykkar í þinginu? „Fyrri reynsla sýnir okkur að óhjákvæmilegt er að forystuflokkur i ríkisstjórn geldur fyrir málþóf og afgreiðsluvanda á Alþingi. Við vissum öll að þessi þinglok yrðu sérlega erfið vegna þess hversu þung mál biðu afgreiðslu og vegna þess að við höfum ekki tryggan meirihluta og því auðveldara að beita meirihlutann ofríki. Það er líka þannig að þegar sverðaglamrið ríkir heyrist ekki í flokki hinna skynsömu lausna. Þegar öskrin eru yfirgnæfandi og menn frussa út úr sér hatursyrðunum á flokkur samræðu og skynsemi erfitt uppdráttar." Má ekki segja að stjórnarskrármálið hafi verið ykkur erfitt? Hefði ekki átt að reyna að ná málamiðlun fyrr? „Það er alveg ljóst að ef menn hefðu forgangsraðað á fyrri stigum hefðum við séð raunverulegan árangur. Það er ekki hægt að forgangsraða málum eftir að í óefni er komið. Ef menn ætluðu að kaflaskipta verkefninu hefði verið farsælla að gera það fyrr og það hefði skilað meiru. Það var rætt opinskátt í stjórnarflokkunum að kaflaskipta verkefninu eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna í haust, en það varð sameiginleg niðurstaða að halda frekar áfram með allt undir." Árni Páll minnir hins vegar á að ávinningurinn sé sá að náðst hafi að vinna heildarendurskoðun á stjórnarskránni til fulls af hálfu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og fá athugasemdir Feneyjanefndarinnar. „Við Katrín Jakobsdóttir og Guðmundur Steingrímsson vorum raunsæ og algjörlega sammála um þörf fyrir umgjörð um áframhaldandi stjórnarskrárumbætur, en það hefur reynst þrautin þyngri að fá aðra flokka til samstarfs um það."Nýr gjaldmiðill og þjóðarsátt Árni segir Samfylkinguna leggja allt kapp á að ná stöðugri gjaldmiðli strax með nýrri þjóðarsátt um markmið í efnahagsmálum á næsta kjörtímabili. Ekki sé hægt að bjóða þjóðinni áfram upp á það sem efnahagslegt lögmál að hver kynslóð lendi í úlfakreppu við að koma sér upp húsnæði. „Baráttan um stöðugleikann stendur núna. Ef við náum ekki að snúa af þeirri braut sem hefur einkennt íslenska hagstjórn undanfarna áratugi verða áfram verðbólgugusur. Við stöndum frammi fyrir óvissuástandi á næstu árum og gætum farið í hefðbundnar bólur og dýfur, sem munu valda nýrri hrinu eignamissis og efnahagslegra hörmunga. Ef við hefjum ekki vegferðina í átt að stöðugleika strax munum við aldrei ná honum." Trauðla tökum við þó upp nýjan gjaldmiðil strax í haust, hvað þarf að gera þangað til? „Við þurfum að byrja ferlið strax og ávinningur kemur fyrr og er tryggari en það sem boðið er upp á af öðrum flokkum. Framsókn er því miður að plata fólk og Sjálfstæðisflokkurinn er svolítið eins og sauður sem eltir útspil Framsóknar. Samfylkingin heldur ein uppi leið viðreisnar um opið hagkerfi og ábyrga hagstjórn, vinnu og velferð. Íslensk þjóð verður að eiga von. Engin önnur Evrópuþjóð býr við þessa fullkomnu óvissu um raungildi launa sinna frá mánuði til mánaðar. Ég held að forsenda þess að við komumst eitthvað áfram í afnámi hafta og því að ná alvöru skrefum í efnahagslegri uppbyggingu sé að það ríki trúverðugleiki um leiðina sem við erum að fara. Ef Framsókn og Sjálfstæðisflokkur komast til þess að gera það sem þeir hafa verið að lofa verður nýr gjaldmiðill ekki tekinn upp næstu áratugi. Þá verður keyrt hér bóluhagkerfi áfram og okkur gert ómögulegt að komast út úr því um fyrirsjáanlega framtíð."Nýtt húsnæðiskerfi Samfylkingin leggur áherslu á ódýrara húsnæði fyrir alla. Þegar hafa verið kynntar breytingar á húsnæðisstuðningi sem felast í húsnæðisbótum í stað leigu- og vaxtabóta. Árni Páll segir flokkinn leggja áherslu á fjölbreyttara húsnæðiskerfi og að hætt verði að gera upp á milli fólks eftir því hvort það kýs að leigja eða eiga. Á kjörtímabilinu hafi verið stutt vel við uppbyggingu námsmannaíbúða og farið í gríðarlegar umbætur á hjúkrunarheimilum. „Við viljum að fólk ráði meiru um búsetu sína og hvort það kaupir eða leigir. Fólk þarf að búa við öryggi þótt það leigi. Auka þarf stuðning við fólk sem býr í leiguhúsnæði og styrkja rekstrargrundvöll leigufélaga til að skapa fjölbreyttan leigumarkað. Síðan er brýnt að koma á alvöru umgjörð um lánveitingar vegna húsnæðiskaupa sem tryggir öryggi fólks og heimilar uppgreiðslu hvenær sem er. Fólk verður að geta losnað út þegar það vill og flutt viðskipti á milli banka. Við viljum betra íbúðalánakerfi að norrænni fyrirmynd."Krónan kallar á álver Árni Páll segir Samfylkinguna vera eina flokkinn sem bjóði skýra sýn um það hvernig efnahagsstefna, atvinnustefna, menntastefna og menningarstefna þurfi að tengjast. Hvernig efnahagslegur stöðugleiki sé forsenda velsældar almennings og fjölbreytts atvinnulífs. „Við viljum almenn samkeppnis- og starfsskilyrði sem gera okkur kleift að fjölga störfum í þekkingargreinum. Við höfum ákveðna vaxtarmöguleika í náttúruháðum greinum en ótakmarkaða í þekkingariðnaði. Ef aðstæður eru fyrir hendi, opnir markaðir og efnahagslegur stöðugleiki, virðast vera lítil takmörk fyrir þeirri hugkvæmni sem við getum sýnt og það skapar efnahagslega velsæld hér á landi. En til þess þurfum við líka að auka við verk- og tæknimenntun, til að fólkið okkar geti nýtt sér tækifærin. Listnám er líka grunnur vaxandi útflutningsgreina. Sköpunarkrafturinn er alls staðar og við þurfum að hlúa að honum hvarvetna. Með stöðugleikanum náum við að fjölga störfum fyrir alvöru og halda í verðmætustu störfin, sem við erum að tapa úr landi núna vegna þess að við höfum ekki raunverulega samkeppnishæfni. Við þurfum fjölbreytt og gott samfélag að öllu leyti. Það er forsenda góðs mannslífs og fjölbreytts efnahagslífs." Venjulega þegar stjórnmálamenn tala um fjölbreytt atvinnulíf þýðir það að þeir séu lítt hrifnir af álverum. Átt þú við það? „Það er auðvitað grundvallarvandamál fyrir okkur sem viljum fjölbreytt efnahagslíf að íslensk króna kallar á einhæfni í atvinnuháttum og ríkisstyrktar lausnir, eins og álverin og önnur iðjuver. Erlendir fjárfestar koma ekki sjálfviljugir til lands með þetta gjaldmiðilsumhverfi – þeir þurfa ívilnana með. Krónan drepur fjölbreytt atvinnulíf og þekkingarstörf og veldur því að eina leiðin sem menn sjá út úr hinum óhjákvæmilegu gengissveiflum er að spýta í með nýjum stórframkvæmdum sem geta hreyft hagkerfið með stórkallalegum hætti. Samfylkingin hefur skýr svör við þeim spurningum sem brenna á fólki. Aðferðir okkar í glímunni við eftirköst hrunsins hafa vakið verðskuldaða hrifningu um allan heim. Við höfum útfærðar lausnir um eflingu atvinnulífs og fjölgun fjölbreyttra starfa. Við bjóðum alvöru velferð og áframhaldandi varðstöðu um lífsafkomu launafólks og lífeyrisþega. Samfylkingin er burðarflokkur í íslenskum stjórnmálum og menn vita hvar þeir hafa hana, vita að hægt er að treysta okkur til að standa vörð um félagslega velferð og efnahagslegan stöðugleika."
Mest lesið Gripinn glóðvolgur í skjóli nætur við að tappa af bílnum Innlent Sagði sig úr þingmannahóp: „Ég læt ekki nota mig í slíkum tilgangi“ Innlent Óteljandi skiptin sem lögregla hefur þurft að vísa sömu mönnum út Innlent Ung stúlka varð fyrir húsbíl og hljóp af vettvangi Innlent Hjólreiðamaður slasaður við Kerlingarfjöll Innlent Deilur Repúblikana um Epstein-skjölin magnast enn Erlent Segir afkomu hundraða ógnað með beinum hætti Innlent Foreldrar ómeðvitaðir um fjárhagstjón barnanna í fjárhættuspilum Innlent Rok og rigning sama hvert er litið Veður Krísa yfirvofandi: Þurr svæði stækka og þorna hraðar Erlent Fleiri fréttir „Í minningu sonar - og allra þeirra sem aldrei komu heim“ MBA-nemi kvartaði og kveinaði en beið lægri hlut Hjólreiðamaður alvarlega slasaður við Kerlingarfjöll Árekstur í Öxnadal Ung stúlka varð fyrir húsbíl og hljóp af vettvangi Vilja að ríkisstjórnin leggi allt kapp í að afstýra tollunum Sagði sig úr þingmannahóp: „Ég læt ekki nota mig í slíkum tilgangi“ Ekkert hægt að gera nema húseigendur kæri Segir afkomu hundraða ógnað með beinum hætti Mikil umferð á gosstöðvunum og óvissa á Grundartanga Gripinn glóðvolgur í skjóli nætur við að tappa af bílnum Sóttu veikan ferðamann í Loðmundarfjörð Óteljandi skiptin sem lögregla hefur þurft að vísa sömu mönnum út Vara fólk við því að ganga á nýrunnu hrauninu Stór jarðskjálfti í Vatnajökli Foreldrar ómeðvitaðir um fjárhagstjón barnanna í fjárhættuspilum Sjáanlega nóg komið þegar þjóðarleiðtogar taka undir Eldur í yfirgefnu húsi í Borgartúni Tvítugur Akureyringur með rafskutluleigu fyrir ferðamenn Þekktum Íslendingum lögð orð í munn með gervigreind Fulltrúar minnihlutans á einu um að tollarnir hafi ekki verið ræddir Gervigreind leggur Íslendingum orð í munn, bátabruni og veðrið um versló Atvinnubílstjóri með farþega undir áhrifum áfengis í vinnunni Segir áhyggjuefni að ESB hafi platað Íslendinga í tíu ár „Ökum slóðann” – Átaksverkefni gegn utanvegaakstri Erlendur ferðamaður lést við Hrafntinnusker Meðvitundarlaus maður sóttur í Silfru Segir Guðlaug fara með rangt mál: „Hvimleið þessi valkvæða hlustun stjórnarandstöðunnar“ Bátar brenna í Bolungarvík Utanríkisráðherra segir stjórnarandstöðuna fara rangt með mál Sjá meira