Kallaður í yfirheyrslu eftir játningu í beinni 30. nóvember 2013 06:00 Tilgangur þeirra sem dreifðu svínshausunum og blóðugum síðum úr Kóraninum á lóð Félags múslima á Íslandi var að vanhelga lóðina. Fréttablaðið/Vilhelm
Íslenskur karlmaður búsettur í Svíþjóð játar að hafa tekið þátt í að koma svínshausum og blóðugu eintaki af Kóraninum fyrir á lóð í Sogamýri á miðvikudag. Múslimar á Íslandi hyggjast reisa mosku á lóðinni. „Þetta er bara gjörningur. Við vorum bara að mótmæla mosku þarna,“ segir Óskar Bjarnason. Hann segir að hann sé hluti af stærri hópi, og þrír menn til viðbótar hafi staðið að því að dreifa hausunum.Óskar BjarnasonÓskar var í viðtali við Útvarp sögu á miðvikudag, sama dag og hausunum var komið fyrir á lóðinni. Þar játaði hann í beinni útsendingu að hafa tekið þátt í verknaðinum. Þar segir hann þó að rauður vökvi sem dreift var á lóðinni hafi verið málning, ekki svínsblóð. Í viðtalinu sagði Óskar að tilgangurinn hafi verið sá að vanhelga lóðina svo múslimar vilji ekki byggja þar. Næst verði notast við blóð en ekki málningu. Talsmenn Félags múslima á Íslandi hafa bent á að þetta hafi engin áhrif á áform um að byggja mosku á lóðinni. Málið er rannsakað sem meint brot á þeirri grein hegningarlaga þar sem lagt er bann við hatursáróðri segir Benedikt Lund, lögreglufulltrúi hjá Lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Lögreglan hefur óskað eftir upptöku af viðtali Útvarps sögu við Óskar. Hann segir að Óskar verði kallaður til skýrslutöku og málið því næst sent ákærusviði lögreglunnar. Þar verði tekin ákvörðun um hvort ákært verði fyrir hatursglæp. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í dag telur Björg Thorarensen það blasa við að þessi verknaður teljist hatursglæpur og varði við almenn hegningarlög. Borgarstarfsmenn hentu bæði svínshausunum og blóðugu eintaki af síðum úr Kóraninum, trúarriti múslima, að lögreglumönnum ásjáandi. Benedikt segir lögreglu því ekkert hafa í höndunum til að staðfesta að um síður úr Kóraninum hafi verið að ræða. Ljósmyndari Fréttablaðsins tók mynd af síðunum þar sem hægt er að lesa textann og staðfesta að hann er úr Kóraninum. Myndin hefur verið send lögreglu. Óskar segir að hann hafi verið á staðnum þegar lögreglan hafi komið á vettvang í Sogamýrinni, en lögreglan hafi ekki haft afskipti af honum. „Ég bara stóð þarna og horfði á þá.“ Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, vildi ekki tjá sig um málið í gær, og sagðist ekki hafa kynnt sér það né vita um hvað það snúist.
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira