Frábært frumkvæði frá hagræðingarnefnd ríkisstjórnarinnar! Vísindamenn skrifa skrifar 30. nóvember 2013 06:00 Nú eru liðnar um tvær vikur frá birtingu tillagna hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar um aukna framleiðni og hagræðingu í ríkisrekstri. Eins og við má búast hefur verið töluverð umræða í samfélaginu um tillögurnar og þær vakið athygli. Það er virkilega ánægjulegt að sjá að í tillögunum er að finna hugmyndir sem íslenskir vísindamenn hafa barist fyrir um áratuga skeið – um eflingu og sameiningu samkeppnissjóða til rannsókna- og vísindastarfs: „32. Samkeppnissjóðum verði fækkað og þeir stækkaðir og efldir þannig að hlutfall milli fastra fjárveitinga til rannsókna og samkeppnissjóða verði jafnara en nú er. Unnið verði að því að50% fjármagns fari í gegnum samkeppnissjóði (tengist einnig iðnaðar- og viðskiptaráðherra). 33. Rannsóknarstofnunum verði fækkað og skipulag og rekstur þeirra einfaldaður frá því sem nú er með það að augnamiði að ná fram rekstrarhagræði og auknum gæðum í rannsóknar- og vísindastarfi. “ (Feitletrun er áhersluaukning höfunda).Vekur von í brjósti Það vekur því von í brjósti um að fallið verði frá fyrirætlan ríkisstjórnarinnar að skera harkalega niður í fjárveitingum til samkeppnissjóðanna næstu þrjú árin eins og boðað er á blaðsíðu 244 í fjárlagafrumvarpi ársins 2014, sem lagt var fyrir Alþingi í lok september. Þar er kveðið á um að fallið verði frá 200 milljóna króna Markáætlun á næsta ári og stigvaxandi niðurskurð til þriggja ára um samtals 1 milljarð króna á fjárveitingum til Tækniþróunarsjóðs og Rannsóknasjóðs. Vegna þeirrar þriggja ára skuldbindingar sem t.d. felst í styrkveitingu úr Rannsóknasjóði mun þetta þýða að þegar í stað verði um 40% niðurskurður á nýjum styrkveitingum úr sjóðnum, sem aftur þýðir að a.m.k. 40 störf ungra vísindamanna hverfi úr nýsköpunarsamfélaginu strax á næsta ári.Djarfar tillögur Þessar djörfu tillögur hagræðingarnefndar ríkisstjórnarinnar um að efla verði hér samkeppnissjóðina til þess að gera íslenskar grunnrannsóknir skilvirkari og samkeppnishæfari hljóta því að vera samfélaginu öllu fagnaðarefni. Grunnrannsóknir eru nefnilega forsenda framfara í nútímasamfélagi, og vegna þeirra jákvæðu áhrifa sem þær hafa á hagvöxt hefur verið lögð mikil áhersla á sterka stöðu samkeppnissjóða hjá þeim þjóðum sem standa fremst í víglínunni hvað varðar lífsgæði og hagvöxt í heiminum. Á tímum samdráttar hefur samkeppnissjóðum margra landa verið hlíft við niðurskurði vegna beinna hagvaxtarhvetjandi áhrifa grunnrannsókna. Það er því ánægjulegt að sjá að ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks virðist gera sér grein fyrir þessu eins og fram kemur í tillögum hagræðingarhópsins. Þar sem því var lofað að margar hagræðingartillagnanna kæmu strax til framkvæmda við vinnslu fjárlaga hljótum við að gera ráð fyrir að fallið verði frá boðuðum niðurskurði á fjárframlögum til samkeppnissjóðanna í því frumvarpi til fjárlaga sem lagt verður fyrir Alþingi í næstu viku. Erna Magnúsdóttir rannsóknarsérfræðingur við Læknadeild HÍMargrét Helga Ögmundsdóttir nýdoktor við Læknadeild HÍÞórarinn Guðjónsson prófessor við Læknadeild HÍEiríkur Steingrímsson prófessor við Læknadeild HÍHans Guttormur Þormar framkvæmdastjóri sprotafyrirtækisins Lífeindar Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 12.07.25 Halldór Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Sóvésk sápuópera Franklín Ernir Kristjánsson Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley Skoðun Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson Skoðun Flugnám - Annar hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason skrifar Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Flugnám - Annar hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Sóvésk sápuópera Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Dæmir sig sjálft Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Ákall um nægjusemi í heimi neyslubrjálæðis Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Samstarf er lykill að framtíðinni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Kjarnorkuákvæði? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hver erum við? Hvert stefnum við? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Hugtakið valdarán gengisfellt Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgðin er þeirra Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Dæmt um form, ekki efni Hörður Arnarson skrifar Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Um fundarstjórn forseta Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hjálpartæki – fyrir hverja? Júlíana Magnúsdóttir skrifar Skoðun Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland skrifar Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason skrifar Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson skrifar Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson skrifar Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy skrifar Skoðun Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja Einar G. Harðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar
Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar
Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar