Jógar vilja þrettán metra bronsgúrú við Esjuna Garðar Örn Úlfarsson skrifar 30. nóvember 2013 07:00 Indverki gúrúinn Sri Chinmoy skýtur hér upp kollinum í skógarrjóðri við Esjurætur. Samsett mynd/Sri Chinmoy miðstöðin.
Sri Chinmoy miðstöðin íhugar nú að kaupa land við rætur Esjunnar undir þrettán metra háa bronsstyttu af Chinmoy. Guðný Jónsdóttir hjá Sri Chinmoy miðstöðinni á Íslandi segir um að ræða listaverk tileinkað friði gert af Englendingnum Kaivaliya Torpy. Hann hafi gert margar styttur af Chinmoy og standi þær víða um heim, til dæmis í Osló, í Prag, á Bali og í Vasa í Finnlandi.Hér sést styttan í samanburði við hús sem stendur á lóðinni.Mynd/Sri Chinmoy miðstöðin.Að sögn Guðnýjar yrði styttan á Íslandi sú langstærsta af Chinmoy sem Torpy hefði gert hingað til af hinum heimsþekkta indverska gúrú og kraflyftingamanni. Torpy hefur komið þrisvar til Íslands og ferðast um. Hér upplifir hann frið í náttúrunni og draumur hans er að styttan verði hér,“ segir Guðný.Sri Chinmoy sýndi aflraunir í heimsókn hér á landi 1989 og lyfti þá Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra.Mynd/Sv.ÞStyttan á að verða 13,35 metra há og sýna Chinmoy í sitjandi stöðu. Óskað hefur verið eftir svari frá Reykjavíkurborg við því hvort reisa megi styttuna í landi Lunds við Mógilsá. Þar er tveggja og hálfs hektara skógi vaxinn skiki með gömlu húsi einmitt til sölu um þessar mundir. Ásett verð er 35 milljónir króna.Uppdráttur sem sýnir hlutföll styttunnar gagnvat fólki.Mynd/Sri Chinmoy miðstöðin„Við förum náttúrlega ekki að kaupa land nema vita fyrirfram að við fengjum leyfi,“ segir Guðný sem kveður skiljanlegt að borgin vilji skoða fyrirspurn þeirra vandlega. „Þeir vilja vitanlega kanna hvort hér er alvara að baki eða hvort við erum bara einhverjir rugludallar.“ Þeir sem standa að Sri Chinmoy miðstöðinni á Íslandi eiga að sögn Guðnýjar það sameiginlegt að hafa numið hugleiðslu hjá indverska jóganum. Hann lést árið 2007.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Fleiri fréttir „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Sjá meira